Flóðbylgjur skullu á strandbyggðunum 3. mars 2010 04:15 Eldar loga Þykkur reykur barst frá matvörubúð í Concepcion í Chile í gær, þar sem hermenn stóðu vörð.nordicphotos/AFP
Svo virðist sem dregið hafi verulega úr gripdeildum í Concepcion í Chile, næststærstu borg landsins, en hún varð einna verst úti í jarðskjálftanum á laugardag. Stjórn landsins lagði mikla áherslu á að stöðva þjófnaði úr verslunum og sendi fjórtán þúsund manna herlið þeirra erinda á vettvang, meðan björgunarfólk vann hörðum höndum að því að bjarga fólki úr rústum húsa. Þjófnaðaraldan sem braust út strax um helgina gerði það að verkum að erfiðara var að útvega mat og aðrar nauðsynjar handa nauðstöddum, þar sem verslanir höfðu víða verið tæmdar og jafnvel kveikt í þeim. Í gær voru 723 dauðsföll staðfest, en óttast er að sú tala muni hækka eitthvað. Flest dauðsföllin urðu í litlum byggðarlögum við ströndina fyrir miðju landsins, næst upptökum skjálftans. Flóðbylgja skall á þessum byggðum stuttu eftir að jarðskjálftinn reið yfir eldsnemma á laugardagsmorgni. Meðal annars fórust þar um 40 eftirlaunaþegar, sem voru á sumarferðalagi í langferðabifreið skammt frá sjávarþorpinu Pellehue. Þar hafði hópurinn numið staðar á áningarstað yfir nóttina. Þegar skjálftinn reið yfir hélt hópurinn á brott hið fyrsta til að komast frá ströndinni, en það dugði ekki til því þrjár flóðbylgjur skullu af miklum krafti á ströndinni og náðu allt að 200 metra inn á land. Í gær höfðu einungis fundist lík fimm manna úr þessum hópi eldri borgara. Íbúar í Chile þekkja vel hættuna af flóðbylgjum í kjölfar jarðskjálfta. Vegaskilti vísa leiðina upp til hærri svæða þar sem fólk er óhult fyrir flóðunum. Í bænum Pelluhue hljóp fólk hópum saman af stað og hrópaði á nágranna sína að koma sér út úr húsunum. „Um það bil 20 mínútum eftir skjálftann komu þrjár flóðbylgjur, tvær þeirra gríðarmiklar, um sex metra háar, og sú þriðja jafnvel enn stærri. Sú fór yfir allt,“ sagði Claudio Escalona, rúmlega fertugur maður sem náði að komast upp á hæð fyrir ofan bæinn. „Við heyrðum óp í börnum, konum og öllum,“ sagði hann. „Síðan féll ógnvekjandi þögn yfir.“ Bærinn er nú rústir einar. Heimilistæki, föt og dauðir fiskar liggja út um allt eins og hráviði. Ástandið er svipað víða í sjávarþorpum á þessum slóðum. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Sjá meira