Innlent

Áhrif á íslenska heilbrigðiskerfið metin

Geir Gunnlaugsson
Geir Gunnlaugsson

Meta þarf hvort og þá hvaða áhrif starfsemi einkarekins spítala á Ásbrú (gamla varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli) hefur á íslenska heilbrigðiskerfið. Þetta segir Geir Gunnlaugsson landlæknir.

Forvígismenn spítalans hafa óskað eftir fundi með Geir og er hann fyrirhugaður við fyrsta hentugleika. Fram hefur komið að ætlun þeirra er að veita sérhæfða þjónustu, fyrst og fremst fyrir útlendinga.

Geir vill ekki láta uppi eigin skoðanir á hugmyndum um einkarekinn spítala og kveðst ætla að meta málið án þess að gefa sér skoðanir á því fyrirfram. „Ég vil skoða hvaða hugmyndir eru í gangi, við hverju má búast og hver áhrifin gætu orðið,“ segir hann. Að auki þurfi að fara yfir hvort sú þjónusta sem bjóða á upp á standist þær kröfur sem gerðar eru til heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

„Að öðru leyti er þetta pólitísk ákvörðun og ég ætla ekki að lýsa yfir pólitískri afstöðu til málsins.“

Geir bendir á að nú þegar sé talsvert um einkarekna heilbrigðisþjónustu í landinu. Margvíslegar rannsóknir og aðgerðir auk margs annars fari fram á einkastofum lækna. - bþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×