Ramos kveður klakann á föstudag 3. mars 2010 11:10 Hosmany Ramos.
Brasilíski lýtalæknirinn Hosmany Ramos sem setið hefur í varðhaldi hér á landi frá því í ágúst á síðasta ári er loks á heimleið. Hann mun fljúga áleiðis til Brasilíu á föstudaginn kemur að sögn Smára Sigurðssonar hjá Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Brasilískir lögreglumenn sem munu fylgja honum koma til landsins í kvöld. Ramos var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í ágúst á síðasta ári þegar hann framvísaði skilríkjum bróður síns. Í ljós kom að um eftirlýstan mann var að ræða en hann á eftir að afplána ellefu ár af 25 ára fangelsisvist í heimalandi sínu. Ramos var á sínum tíma sakfelldur fyrir mannrán og eiturlyfjasmygl. Yfirvöld í Brasilíu óskuðu eftir því að Ramos yrði framseldur og á það féllst dómsmálaráðuneytið og dómstólar. Hæstiréttur felldi þó úr gildi úrskurð héraðsdóms á sínum tíma og fyrirskipaði að mál Ramosar yrði tekið fyrir að nýju. Það var gert og staðfesti Hæstiréttur úrskurð héraðsdóms í lok febrúar. Ramos hélt því meðal annars fram að hann ætti á hættu að sæta ofsóknum af hendi fangelsisyfirvalda í Brasilíu en hann hefur gagnrýnt aðbúnað fanga þar í landi harðlega. Allan þennan tíma hefur Ramos setið í varðhaldi og má gera ráð fyrir því að kostnaður af veru hans hér hlaupi á nokkrum milljónum fyrir íslenska ríkið. Kostnaður við flutninginn aftur til Brasilíu verður þó greiddur af þarlendum yfirvöldum að sögn Smára.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira