„Lúðvík sýndi mikið hugrekki“ 8. júlí 2010 11:53 Rúnar Sigurður Sigurjónsson hrósa Lúðvíki fyrir að láta af störfum. Rúnar hafði safnað um 1000 undirskriftum gegn bæjarstjóranum. „
Ég er mjög sáttur við þetta. Rödd bæjarbúa heyrðist og það var tekið mark á henni," segir Hafnfirðingurinn Rúnar Sigurður Sigurjónsson, sem hefur verið iðinn við að safna undirskriftum hjá bæjarbúum til þess að knýja á íbúakosningu um ráðningu Lúðvíks Geirssonar, fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar, en hann tilkynnti að hann myndi ekki taka við embætti bæjarstjóra í morgun. „Hann er maður meiri fyrir að hafa hlustað á fólkið í kringum sig og stigið niður og það ber að hrósa honum fyrir það. Hann sýndi mikið hugrekki," segir Rúnar en áréttar að það þurfti heldur mikið til þess að Lúðvík sýndi hugrekkið. Aðspurður segist Rúnar hafa verið búinn að safna tæplega þúsund undirskriftum á hálfum mánuði. Í yfirlýsingu sem Lúðvík sendi frá sér sagði: „Í ljósi þeirra eftirmála nýliðinna kosninga og ákvarðana um skipan í embætti bæjarstjóra er einboðið að ekki mun ríkja sú almenna sátt sem er að mínu mati nauðsynleg til að viðhalda áfram víðtækri samvinnu og samráði í bæjarfélaginu." Það er oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, Guðmundur Rúnar Árnason, sem tekur við sem bæjarstjóri. Áður hafði Lúðvík gegnt embættinu í átta ár.
Tengdar fréttir Lúðvik Geirsson hættir sem bæjarstjóri Lúðvík Geirsson hefur ákveðið að hætta sem bæjarstjóri í Hafnarfirði og var Guðmundur Rúnar Árnason ráðinn í stað hans. Meirihlutinn í Hafnarfirði hefur verið gagnrýndur töluvert eftir sveitastjórnarkosningarnar í maí fyrir að ráða Lúðvík í starfið þrátt fyrir að hann hafi ekki hlotið kjör sem bæjarfulltrúi í kosningunum. 8. júlí 2010 11:20 Vill íbúakosningar um ráðningu bæjarstjóra Hafnarfjarðar Hafnfirðingurinn Rúnar Sigurður Sigurjónsson hefur ákveðið að hefja undirskriftasöfnun bæjarbúa til þess að knýja á um íbúakosningu vegna ráðningu Lúðvíks Geirssonar, sem var ráðinn bæjarstjóri eftir að hafa fallið út úr bæjarstjórn. Hann sat í sjötta sæti lista Samfylkingarinnar en flokkurinn náði aðeins fimm mönnum inn. Lúðvík hefur hinsvegar verið bæjarstjóri í átta ár. 23. júní 2010 16:07 Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Fleiri fréttir „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Starfsfólk bráðamóttöku óttist um heilsu sína og öryggi Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Vill að virðisaukaskattur á barnavörur verði látinn fjúka Starfsfólk á bráðamóttöku segist óttast um öryggi sitt Afplánaði of lengi en fær ekki krónu Hæstiréttur fjallar um hryðjuverkamálið svokallaða í dag Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Spila styrktarleik til minningar um Patrek: „Hans er sárt saknað“ Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Innflutningi stýrt frá Litla-Hrauni Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Grikki grunaður um morð látinn dúsa tvær vikur til viðbótar Hættur við að fá dómkvadda matsmenn vegna varnargarða Bílvelta í Ártúnsbrekku Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út „Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Ræða við vitni og hraðakstur til skoðunar Bein útsending: Færri börn undir þrettán ára á TikTok „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Sérhæfð móttaka Landspítala fær nafn Bryndísar Klöru Sjá meira
Lúðvik Geirsson hættir sem bæjarstjóri Lúðvík Geirsson hefur ákveðið að hætta sem bæjarstjóri í Hafnarfirði og var Guðmundur Rúnar Árnason ráðinn í stað hans. Meirihlutinn í Hafnarfirði hefur verið gagnrýndur töluvert eftir sveitastjórnarkosningarnar í maí fyrir að ráða Lúðvík í starfið þrátt fyrir að hann hafi ekki hlotið kjör sem bæjarfulltrúi í kosningunum. 8. júlí 2010 11:20
Vill íbúakosningar um ráðningu bæjarstjóra Hafnarfjarðar Hafnfirðingurinn Rúnar Sigurður Sigurjónsson hefur ákveðið að hefja undirskriftasöfnun bæjarbúa til þess að knýja á um íbúakosningu vegna ráðningu Lúðvíks Geirssonar, sem var ráðinn bæjarstjóri eftir að hafa fallið út úr bæjarstjórn. Hann sat í sjötta sæti lista Samfylkingarinnar en flokkurinn náði aðeins fimm mönnum inn. Lúðvík hefur hinsvegar verið bæjarstjóri í átta ár. 23. júní 2010 16:07