Mikil hætta af yfirgefnum borholum 8. júlí 2010 06:30 Olíulekinn í Mexíkóflóa í maí er stærsta umhverfisslys sinnar tegundar í Mexíkóflóa. Þúsundir borholna eru vanhirtar og yfirgefnar í flóanum samkvæmt rannsókn. fréttablaðið/ap
Mikil hætta getur stafað af um 3.500 vanhirtum og yfirgefnum olíuborholum í Mexíkóflóa, samkvæmt fréttum Asso-ciated Press-fréttastofunnar, sem hefur rannsakað málið. Borholurnar eru í opinberum skjölum sagðar hafa verið yfirgefnar tímabundið, en hafa margar hverjar verið það svo árum og jafnvel áratugum skiptir. Að minnsta kosti 23 þúsund lokaðar borholur til viðbótar eru í flóanum. Yfirgefnar borholur geta valdið miklum umhverfisskaða, og olíuslysið í flóanum í apríl varð einmitt þegar verið var að steypa í borholu og undirbúa tímabundna lokun. Sérfræðingar sem rætt hefur verið við segja að þrýstingur geti myndast á nýjan leik í yfirgefnum borholum, rétt eins og í eldfjöllum. Það geti leitt til leka. Þá hafi sjór og neðanjarðarþrýstingur áhrif á steypu, sem notuð er til að loka þeim, og pípulagnir og geti orðið til þess að bæði veikist. Steypa geti brotnað eða tærst upp, rétt eins og hún geri ofanjarðar í byggingum og vegum. Þar sem mögulegt er að setja borholur í notkun á ný er þeim holum sem er tímabundið lokað yfirleitt ekki lokað eins vel og þeim sem er varanlega lokað. Reglur um tímabundið yfirgefnar borholur skikka olíufyrirtækin til að setja fram áætlanir innan árs um annaðhvort áframhaldandi notkun á þeim eða algjöra lokun. Þessar reglur eru þó gjarnan sveigðar og virðist sem stjórnvöld rannsaki ekki hvort reglum er fylgt heldur taki skjöl frá olíufyrirtækjunum gild. Tugþúsundir olíuborholna eru taldar illa lokaðar, ýmist vegna þess að þeim var lokað fyrir tíma strangra reglna um slíkt eða vegna þess að eigendur þeirra brjóta reglurnar. Fyrirtæki freistast til að loka holunum ekki nægilega vel, þar sem það er bæði tímafrekt og dýrt. Þátt fyrir viðvaranir um leka hafa hvorki stjórnvöld né iðnaðurinn látið meta stærð vandans og því veit enginn hversu margar borholur leka né hversu mikið. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Sjá meira