Innlent

Bankinn fær arð frá Actavis

Björgólfur Thor Björgólfsson
Björgólfur Thor Björgólfsson
Stjórnendur Deutsche Bank í Þýskalandi eru sagðir við það að ná samningum við Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, um uppgjör skulda Nova-tors við bankann sem tilkomnar eru vegna yfirtöku félagsins á Actavis í ágúst fyrir þremur árum.

Fréttastofa Reuters hefur eftir heimildamönnum að líklega verði stór hluti skulda Novators færður niður. Á móti muni arður og annað fjárstreymi sem áður hafi runnið úr Actavis til Novators fara eftirleiðis til Deutsche Bank. Það sama eigi við um andvirði af hugsanlegri sölu Actavis. Enginn tengdur Novator vildi tjá sig formlega um viðræðurnar og efni þeirra.

Deutsche Bank lánaði Novator 4,7 milljarða evra, jafnvirði um 740 milljarða króna á núvirði, vegna yfirtökunnar á Actavis og er þetta mesta áhættuskuldbinding hans. Eftir því sem næst verður komist er um kúlulán að ræða með sex prósenta vöxtum með veði í bréfunum sjálfum líkt og tíðkaðist í skuldsettum yfirtökum. Þá spilar inn í að gjalddagi lánsins er nú í júlí. Ekki er vitað til þess að samið hafi verið um lengri greiðslufrest eða aðrar breytingar á lánafyrirkomulaginu. - jab




Fleiri fréttir

Sjá meira


×