Flóð kvartana frá foreldrum 6. mars 2010 03:00 Oddný Sturludóttir
Leikskólaráð Reykjavíkurborgar mun endurskoða ákvörðun sína um að afnema systkinaforgang á leikskólum borgarinnar. Er þetta gert að tillögu Oddnýjar Sturludóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar. „Undanfarin ár höfum við borgarfulltrúar, sérstaklega fulltrúar í leikskólaráði, varla fengið fleiri kvartanir frá foreldrum um neitt einstakt mál en afnám systkinaforgangs. Nú hefur áfangasigur náðst í því máli því leikskólaráð hefur ákveðið að endurskoða þá ákvörðun,“ segir Oddný. Systkinaforgangur var afnuminn árið 2008 með þeim rökum að jafnræðisreglan væri brotin, en systkinaforgangur þýðir að yngri börn eru tekin inn á undan eldri börnum, eigi þau systkini á leikskólanum. Sviðsstjóra leikskólasviðs verður falið að leita álits borgarlögmanns á réttmæti systkinaforgangsins og í kjölfarið leggja fyrir ráðið tillögur um hvernig hægt sé að koma til móts við foreldra sem eiga fleiri en eitt barn á leikskólaaldri. Oddný segir þetta vera mikið hagsmunamál fyrir foreldra. „Á það hefur verið bent að það er harla ósanngjarnt að foreldrar keyri með lítil börn á tvo mismunandi staði í borginni. Það er í senn mikið álag á börnin og fjölskyldulífið í heild, auk þess sem það er ekki umhverfisvænt.“ - shá
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Fleiri fréttir Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Sjá meira