Lítil fjölgun kvenna í sveitarstjórnum 1. júní 2010 06:00
192 konur voru kjörnar í sveitarstjórnir um helgina en 320 karlar. Hlutur kvenna er því 37,5 prósent og eykst um 1,5 prósentustig á milli kosninga, var 36 prósent fyrir fjórum árum. Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, segir það óneitanlega vonbrigði að hlutur kvenna hafi ekki aukist meira en raun bar vitni. Hún segir jákvætt að hann þokist í rétta átt en markmiðið hljóti að vera að hlutur kvenna sé jafn hlut karla. Hlutfall kvenna var hærra í þeim 54 sveitarfélögum þar sem voru listakosningar eða 40,5 prósent. Í átján sveitarfélögum voru óhlutbundnar kosningar sem þýðir að allir í sveitarfélaginu voru í kjöri. Þar var hlutur kvenna 35 prósent. Í fjórum sveitarfélögum var sjálfkjörið, en í þeim var stillt upp einum lista. Þar voru níu konur kjörnar í sveitarstjórnir af 20 eða 45 prósent. „Þessar niðurstöður eru að vissu leyti eftir bókinni, það hefur verið tilhneiging til þess að hlutur kvenna sé betri í stærri sveitarfélögum en verri í þeim smærri, ekki síst er hann verri þar sem eru óhlutbundnar kosningar," segir Kristín. Konur eru meirihluti fulltrúa í 11 af 76 sveitarfélögum á landinu en karlar í 65 sveitarfélögum. Karlar eru einráðir á einum stað á landinu, í Akrahreppi í Skagafirði. Þar var óhlutbundin kosning og fimm karlar kjörnir í hreppsnefnd. Hlutfall kvenna er hæst í Reykjavík þegar landið er skoðað eftir kjördæmum, 47 prósent, en lægst í Suðvesturkjördæmi eða 33 prósent.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira