Innlent

Fimm vilja í Selfosskirkju

Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson hefur gegnt prestsembættinu síðustu misseri.
Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson hefur gegnt prestsembættinu síðustu misseri.

Fimm sækja um embætti prests í Selfossprestakalli, en umsóknarfrestur um starfið rann út á mánudag. Skipað er í embættið frá og með 1. mars.

Umsækjendur eru prestarnir Ása Björk Ólafsdóttir, Óskar Hafsteinn Óskarsson, sem gegnt hefur starfinu undanfarna mánuði, og Ragnheiður Karítas Pétursdóttir, og guðfræðingarnir Stefán Einar Stefánsson og Þráinn Haraldsson. Biskup skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar.

Mikill styr hefur staðið um prestakallið á Selfossi síðan séra Gunnar Björnsson var kærður fyrir kynferðisbrot gegn sóknarbörnum sínum. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×