Innlent

Tók sex mínútur að finna vændiskonu

Valur Grettisson skrifar
Að kaupa vændi hér á landi er ólögleg.
Að kaupa vændi hér á landi er ólögleg.

„Þetta var ótrúlega auðvelt. Við gerðum óvísindalega tilraun og komumst að því að það er hægt að verða sér út um vændiskonu hér á landi á innan við sex mínútum," segir útvarpsmaðurinn Atli Már Gylfason sem hringdi í vændiskonu síðustu mánaðamót. Hann pantaði sér þjónustu hjá konunni í beinni útsendingu án nokkurra vandamála.

Aðspurður hvar hann fann númerið svaraði Atli því til að hann hefði fundið nokkur númer: „Ég fór bara í dagblöðin og safnaði þeim saman."

Hann segir fyrsta númerið hafa virkað, vændiskona svaraði símanum og staðfesti undir eins að um vændi væri að ræða.

Vændiskonan sagði við Atla að eitt skipti kostaði 20 þúsund krónur. Þegar Atli spurði hvort það væri mögulegt að hitta hana seint um nóttina sagði hún honum einfaldlega að hringja hálftíma á undan sér.

Þess þarf varla að geta að það er ólöglegt að kaupa vændi á Íslandi.

Hægt er að hlusta á símtalið í viðhengi en það hljómaði í þættinum Tívolí á FM 95.7.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×