Erlent

Fleiri hermenn í Afganistan en í Írak

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hermönnum fjölgar í Afganistan en fækkar í Írak. Mynd/ AFP.
Hermönnum fjölgar í Afganistan en fækkar í Írak. Mynd/ AFP.
Fleiri bandarískir hermenn eru nú í Afganistan en í Írak, í fyrsta skipti síðan að Saddam Hussein var steypt af stóli árið 2003.

Nýjar tölur úr varnamálaráðuneyti Bandaríkjanna í Pentagon sýna að það eru um 94 þúsund bandarískir hermenn í Afganistan en 92 þúsund í Írak. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur heitið því að hann muni kveða allar hersveitir frá Írak fyrir lok ágúst. Hins vegar er búist við því að um 50 þúsund hermenn verði þar til loka ársins 2011 til þess að styðja við bakið á íröskum hermönnum.

Obama tilkynnti í desember síðastliðnum að hann myndi fjölga hermönnum í Afganistan um 30 þúsund til þess að takast á við Talibana þar. BBC fréttastofan segir að búist sé við að heildarfjöldi bandarískra hermanna í Afganistan verði kominn upp í 100 þúsund síðar á árinu. Að auki eru um 47 þúsund þar á vegum Atlantshafsbandalagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×