Vill Hauk í 4 ára fangelsi 24. mars 2010 06:00 „Haukur vissi að hann væri að kalla á athygli með millifærslunni. Var maður með þekkingu og greind Hauks Þórs svo heimskur að haga sér þannig? Ég held að það sé algjörlega útilokað,“ sagði Gestur Jónsson fyrir rétti í gær.Fréttablaðið/gva
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, krefst fjögurra ára fangelsisdóms yfir Hauki Þór Haraldssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Landsbankans, sem ákærður er fyrir að draga sér 118 milljónir. Sækjandi og verjandi fluttu mál sitt fyrir dómi í gær. Haukur færði féð af reikningi félagsins NBI Holdings 8. október 2008 inn á eigin reikning. Félagið var í eigu sjálfseignarsjóðs á Guernsey og hafði á árum áður verið notað af Landsbankanum til fjárfestinga. Haukur var prókúruhafi þess og eini Íslendingurinn í stjórn í seinni tíð. Hann hefur sjálfur sagst hafa ætlað að bjarga fénu frá því að brenna upp í hruninu. Helgi Magnús sagði að í miðju hruni hefðu verið „kjöraðstæður til að gera svona færslu án þess að nokkur tæki eftir henni". Ringulreiðin hafi verið mikil og illmögulegt að fylgjast með öllum fjármagnshreyfingum. Í því ljósi hafi áhættan af því að millifærslan kæmist upp ekki verið svo mikil að hún girti fyrir brotið, eins og verjandi Hauks hefur áður haldið fram. „Er eitthvað grunsamlegra fyrir bankastarfsmann en að færa peninga viðskiptamanns inn á eigin reikning? Það hlýtur að hafa hrópað á hann að upplýsa samstarfsmenn sína um þetta," sagði Helgi Magnús. Það hafi Haukur hins vegar ekki gert. „Hann greindi engum frá þessu heldur lá á þessum millifærslum - þessu fé - í mánuð." „Afstaða ákæruvaldsins í þessu máli hefur valdið mér nokkrum heilabrotum," sagði Gestur Jónsson, verjandi Hauks, og benti á það sem hann sagði grundvallaratriði í málinu: að Haukur hefði sem prókúruhafi haft fulla heimild til að millifæra féð að vild, og að ekkert benti til þess að hinn stjórnarmaður félagsins og eigandi þess, sjálfseignarsjóðurinn The 1886 Trust, hefðu nokkuð við millifærsluna að athuga. „Ef þeir gera enga athugasemd við það þá er mjög skrítið að Haukur skuli sæta ákæru fyrir fjárdrátt," sagði Gestur. Þar fyrir utan hefði hann enga tilraun gert til að hylja slóð sína eða snerta á fénu þar sem það lá á sérgreindum bankareikningi hans. stigur@frettabladid.is
Tengdar fréttir Sagði Elínu ekkert þrátt fyrir tvo fundi Haukur Þór Haraldsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landsbankans, sem ákærður er fyrir fjárdrátt, segir ákæruna algjörlega tilefnislausa. Þetta kom fram við aðalmeðferð í málinu í gær. 23. mars 2010 06:00 Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Ætla aftur að mála regnbogafánann Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Fleiri fréttir Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Sjá meira
Sagði Elínu ekkert þrátt fyrir tvo fundi Haukur Þór Haraldsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landsbankans, sem ákærður er fyrir fjárdrátt, segir ákæruna algjörlega tilefnislausa. Þetta kom fram við aðalmeðferð í málinu í gær. 23. mars 2010 06:00