Innlent

Hundruð horfa á norðurljósin

norðurljós Vel hefur viðrað að undanförnu.
norðurljós Vel hefur viðrað að undanförnu.

Milli þrjú og fjögur hundruð erlendir ferðamenn nutu norðurljósadýrðar fyrir austan fjall á sunnudagskvöld. Skilyrði hafa verið einstaklega góð að undanförnu, að sögn Þóris Garðarssonar hjá Allrahanda.

Norðurljósaferðir eru annars vegar farnar í Borgarfjörð eða austur að Skógum, eftir því á hvorum staðnum eru betri veðurskilyrði. Norðurljósaferðirnar geta tekið allt að fimm klukkustundir. - ng




Fleiri fréttir

Sjá meira


×