Fótbolti dregur athygli að mannréttindabrotum 28. júní 2010 03:00 Wilter hefur barist gegn mannréttindabrotunum í hverfi sínu lengi. Hún hélt fyrirlestur um baráttuna í Naíróbí í Reykjavík í síðustu viku á vegum Amnesty. fréttablaðið/ARNÞÓR
Wilter Nyabate er kenísk baráttukona sem hefur undanfarin ár barist gegn því að fólk í fátækrahverfum í höfuðborg landsins sé flutt nauðugt af heimilum sínum. Hún var hér á landi á vegum Amnesty til að kynna átakið Stand up united, sem á íslensku heitir Vertu með í vörninni… gegn mannréttindabrotum. Þetta er alþjóðleg herferð Amnesty sem var hrundið af stað í tilefni af heimsmeistaramótinu í knattspyrnu og ætlað að vekja athygli á mannréttindabrotum víðs vegar um heiminn. Keníska ríkisstjórnin lofaði fyrir nokkru að bæta úr aðstæðum og húsnæðismálum í fátækrahverfunum í Naíróbí, höfuðborg Kenía. Helmingur íbúa borgarinnar búa í slíkum hverfum, þar á meðal Wilter, sem býr ásamt tveimur börnum sínum í stærsta fátækrahverfinu. Ýmislegt jákvætt hefur gerst eftir að ríkisstjórnin hóf átak sitt, en því fylgir einnig margt slæmt. Fjöldi fólks í hverfinu sem Wilter býr í hefur verið flutt nauðugt úr húsum sínum og þau jöfnuð við jörðu. „Þeir koma um miðjar nætur. Það sjást bara jarðýtur og þú heyrir grát í börnum og mæðrum sem kalla á hjálp. Þetta er sálfræðileg pynting, þær taka auðvitað börnin með sér út og þá verða allar eigur þeirra eftir. Það er enginn fyrirvari og allt er eyðilagt. Þegar fólk kemur svo heim aftur til að byrja upp á nýtt á það ekkert. Þú færð engar bætur fyrir það sem þú missir." Komið hefur verið upp kerfi meðal íbúanna í hverfinu til að bregðast við þessu. „Þegar við heyrum að verið er að bera fólk út þá látum við það berast og látum fjölmiðla á svæðinu líka vita. Við mætum og fjölmiðlarnir líka, það vekur athygli og stjórnvöld sjá að við vitum alveg hvað við erum að gera." Erfiðar aðstæður í hverfunumWilter NyabateLífið í fátækrahverfunum er streð, og þar eru erfiðar aðstæður. „Þú þarft að borga fyrir alla grunnþjónustu, eins og vatn, á hverjum degi í litlum skömmtum. Þú verður að borga fyrir alla læknisþjónustu, og margir í þessum hverfum hafa ekki efni á því. Fólk er með HIV eða alnæmi og fær lyf, en getur ekki tekið þau því það hefur ekki efni á nægum mat. Ef lyfin eru tekin án matar þá veldur það svima og vanlíðan, svo sumir hætta að taka lyfin." Fólk eins og Wilter borgar þó skatta. „Okkar skattar eru háir. Fólkið sem fær undir 50 dollara á mánuði borgar skatta - en allir þingmenn hafa skattfrjálsar tekjur. Þeir eru með um tvær milljónir íslenskra króna á mánuði, en borga enga skatta. Á meðan svo er þá verða fátækir alltaf fátækir, og ríkir alltaf ríkir."Þrýstingur að utanEitt af því sem Wilter og samstarfsfélagar hennar berjast fyrir er að keníska ríkisstjórnin komi á gagnsæjum reglum um hvernig staðið skuli að þessum málum. „Fólkið fær ekki upplýsingar um hvað sé að gerast og það fær ekki tíma til að segja sína skoðun." Íbúarnir í hverfinu óttast að þó að ætlunin sé að byggja betra húsnæði á svæðinu muni það alls ekki standa núverandi íbúum til boða, til þess verði það of dýrt. „Húsin eru gerð fyrir fólkið sem býr þarna en þau eru alltof dýr. Það er svo erfitt að eignast hús, flest fólkið úr fátækrahverfunum mun ekki græða á þessu verkefni."Ákveðið var að tengja baráttuna fyrir mannréttindum við heimsmeistaramótið til að vekja sem mesta athygli. „Stór hluti heimsins er að fylgjast með og þetta var leið til að ná til þeirra og gera þeim grein fyrir því hvað er að eiga sér stað. Þetta er að eiga sér stað víðs vegar um heiminn og það er réttur fólks að vera ekki borið út af heimilum sínum."„Nú eru stjórnvöld að reyna að koma á reglum um þetta. Alþjóðasamtök hafa verið að taka þátt í því. Við þurfum líka þrýsting að utan til þess að þetta verði gert. Ríkisstjórn Íslands getur til dæmis þrýst á ríkisstjórnina í Kenía að virða mannréttindi og hætta þessu."
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Fleiri fréttir Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Sjá meira