Fólk kjósi ef vill eða sitji heima ef vill 5. mars 2010 02:00 Sigmundur davíð og Steingrímur Færi ég að gefa kjósendum leiðbeiningar, væri eins víst að formaður Framsóknarflokksins teldi þær vitlausar og skaðlegar, sagði Steingrímur J. Sigfússon og segir að valdið sé kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem verður haldin á morgun. Fréttablaðið/GVA „
Við skulum láta fólkið í landinu hafa það eins og það vill. Kjósa ef það vill eða sitja heima ef það vill,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á Alþingi í gær. Þar var hann krafinn svara um þjóðaratkvæðagreiðslu morgundagsins um Icesave-lögin. Stjórnarandstaðan vildi vita hvort hætt yrði við kosninguna. Eins var kallað eftir leiðsögn Steingríms um hvort hann teldi að fólk ætti að kjósa og hvort hann tæki ekki undir að hagsmunum þjóðarinnar væri best borgið með því að fólk mæti á kjörstað og segði nei. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, sagði að allar tilraunir til að hætta við kosninguna á laugardag yrðu felldar af stjórnarandstöðunni og hvatti Steingrím til að taka af öll tvímæli um að ekki stæði til að hætta við atkvæðagreiðsluna. „Það hefur alltaf legið fyrir að þessi kosning færi fram nema breyttar aðstæður byðu upp á annað,“ sagði Steingrímur. „Nú er tíminn runninn frá okkur í þeim efnum.“ Aldrei hafi hvarflað að neinum að hætta við atkvæðagreiðsluna í ágreiningi við stjórnarandstöðuna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði gott að Steingrímur tæki af tvímæli um þetta. Hins vegar skipti máli hvernig staðið sé að undirbúningi og kynningu þessa merkisatburðar. Best væri að ríkisstjórnin stuðlaði að því að niðurstaðan yrði sem afdráttarlausust. Þá væri rétt að slíta samningaviðræðum og kalla samninganefnd Íslendinga heim þar til niðurstaða kosningarinnar liggur fyrir. „Ég mun ekki ekki kalla nefndina heim meðan hún sjálf telur ástæðu til að vinna áfram að málinu,“ sagði Steingrímur „Það þarf alltaf að leysa þetta mál. Það hverfur ekki þótt menn segi nei á laugardaginn.“ Færa megi rök fyrir því að samningsstaða Íslands verði aldrei sterkari en nú, dagana fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það er alls ekki gefið að samningsstaðan verði betri þegar þrýstingur vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar er að baki eftir helgi,“ sagði Steingrímur. Hann sagðist ekki ætla að gefa kjósendum nein fyrirmæli: „Kjósandinn ákveður sjálfur hvort hann fer á kjörstað og hvort hann segir já, nei eða situr hjá,“ sagði Steingrímur. peturg@frettabladid.is
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Sjá meira