Höfum gengið inn í hreinsunareldinn 5. mars 2010 04:00 Iðnþing 2010 Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að í greiningarskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sé að finna leiðbeiningar um nauðsynlegar aðgerðir hér á landi, burtséð frá því hvort til aðildar að ESB komi eður ei. Fréttablaðið/GVA „
Við Íslendingar höfum gengið inn í hreinsunareldinn,“ sagði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins í gær. „Við höfum þegar gripið til harkalegs niðurskurðar og hækkað skatta til þess að rétta við skuldir ríkissjóðs. Við höfum gert upp gömlu bankana í sátt við lánardrottna þeirra og komið þeim í starfhæft form. Við erum að gera upp við orsakir bankahrunsins á vettvangi Alþingis og dómstóla.“ Katrín kvað þjóðina nú eygja möguleika á að byrja upp á nýtt með hreint borð. „Aðrar þjóðir eru vart byrjaðar að gera upp sínar syndir þótt augljóst sé að það mun reynast óhjákvæmilegt.“ Iðnaðarráðherra áréttaði þó að endurreisn efnahagslífsins hér væri sérlega erfið því ekki væri einvörðungu við fjármálakreppu að fást heldur einnig alvarlega gjaldeyriskreppu sem haldið sé í skefjum með víðtækum höftum. „Þessi „tvíburakreppa“ eins og Seðlabankinn kallar hana gerir viðbrögð stjórnvalda erfiðari,“ sagði hún og kvað afar mikilvægt að halda áfram að byggja upp traust á íslensku hagkerfi. „Eins og var að takast á síðari hluta ársins sem leið, áður en Icesave-ferlið fór aftur í strand. Við eigum mikið undir því að áætlunin um endurreisn efnahagslífsins sem unnin var í samvinnu við AGS nái fram að ganga. Við verðum að geta fjármagnað uppbyggingu og endurfjármagnað lán opinberra aðila og orkufyrirtækja á kjörum sem ekki flytja arðinn úr landi.“ Katrín segir slæmar fréttir þær helstar að fjárfesting hér á landi hafi dregist saman um helming í fyrra og um 39 prósent á heimsvísu. „Atvinnuleysi verður okkar helsta böl næstu misseri komi ekki til nýrra fjárfestinga. Góðu fréttirnar eru að það er rúm fyrir stórframkvæmdir í hagkerfinu á næstu misserum án þess að þær þurfi að ryðja burt sprotum og nýskapandi starfsemi.“ Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, sagði í ræðu sinni eina ástæðu þess að illa gengi að endurreisa efnahag landsins að hér virtust áhrifamikil öfl á móti hagvexti. „Þessi öfl beita afli sínu gegn endurreisn atvinnulífsins vegna þess að þau telja að hag landsmanna verði betur borgið í framtíðinni án hagvaxtar. Þessi átök standa nú yfir á Íslandi. En við aðhyllumst ekki þetta sjónarmið,“ sagði hann. Helgi og Katrín sögðu að vegna nýliðunar á vinnumarkaði og í baráttu við atvinnuleysi þyrfti að búa til 35 þúsund störf næstu tíu ár. Til þyrfti samstillt átak og stefnumótun til framtíðar. olikr@frettabladid.is
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Sjá meira