Innlent

Lögreglumenn lýsa yfir þungum áhyggjum

Úr safni.
Úr safni. Mynd/Pjetur
Lögreglufélag Þingeyinga lýsir yfir þungum áhyggjum og megnri óánægju með seinagang og áhugaleysi í samningaviðræðum samninganefndar ríkisins við Landssamband lögreglumanna. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi félagsins fyrr í dag.

Aðalfundurinn veltir því fyrir sér hvort að áhugaleysi stjórnvalda skýrist af því að lögreglumenn hafa ekki verkfallsrétt og eru því nánast vopnlausir í sinni kjarabaráttu. „Getur verið að yfirlýsingar stjórnvalda um mikilvægi lögreglunnar í landinu séu einungis í orði en ekki á borði," segir í ályktuninni.

Lögreglufélag Þingeyinga telur óviðunandi að lögreglumenn hafi verið samningslausir í 277 daga. Félagið skorar því á samninganefnd ríkisins að koma, sem allra fyrst, að samningaborðinu með viðunandi tilboð um kjarabætur til handa lögreglumönnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×