Formenn stjórnarflokkanna kjósa ekki 5. mars 2010 12:02 Steingrímur og Jóhanna ræddu við fréttamenn eftir ríkisstjórnarfund í morgun.
Íslendingar hafa ekki efni á að það dragist á langinn að ná nýjum samningum um Icesave að mati formanna stjórnarflokkanna. Hvorugur þeirra ætlar að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni en segja að með því séu þau ekki að skora á fólk að mæta ekki á kjörstað. Þreifingar hafa átt sér stað í morgun milli samninganefndar Íslands, Breta og Hollendinga en Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra sögðu að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun, engar líkur á að samningur lægi fyrir áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram á morgun. Þá reikna þau ekki með að viðræður fari fram á morgun á meðan þjóðaratkvæðagreiðslan stendur yfir. Þau leggi hins vegar áherslu á að viðræður hefjist strax aftur eftir helgi og hefur fjármálaráðherra óskað eftir því við kollega sína í Bretlandi og Hollandi. Þau reikna bæði með að þjóðin felli Icesavelögin en fjármálaráðherra segir skipta miklu máli hvernig þau úrslit verði túlkuð. „Og það skiptir miklu máli fyrir landið að þau verði ekki oftúlkuð. Það er auðvitað mjög hættulegt fyrir okkur ef að þetta verður lagt upp þannig, og fer út um heiminn, að með þessu sé Ísland alfarið að hafna því að leysa þetta mál eða axla ábyrgð. Það eru ekki þau skilaboð sem við þurfum á að halda heldur þvert á móti að þetta breyti engu um vilja og ásetning íslenskra stjórnvalda til þess að reyna að vinna að lausn þessa máls á ábyrgum forsendum. Allt annað er landinu stórhættulegt,“ segir Steingrímur. Hvorki forsætisráðherra né fjármálaráðherra ætla að mæta á kjörstað á morgun. Jóhanna segir að með því sé hún ekki að vona að kjörsókn verði dræm. „Hér hefur hver maður sinn rétt hvort hann fer á kjörstað og segi já, nei eða skila auðu. Þannig að ég ætla hvorki að hvetja né letja fólk til þess að fara á kjörstað. Því ræður hver og einn sjálfur. Ég hef tekið ákvörðun fyrir mig,“ segir Jóhanna. Fjármálaráðherra segir að Ísland hafi ekki efni á að samningar dragist á langinn. Hann vildi ekki svara því beint hvort til greina kæmi að ríkisstjórnin legði nýjan samning sem hún teldi góðan fyrir Alþingi, jafnvel þótt öll eða hluti stjórnarandstöðunnar teldi niðurstöðuna ekki nógu góða. „Það er of snemmt að ræða þetta á þeim forsendum. Við skulum taka hvern dag fyrir sig. Ég skil eftir þá spurningu í loftinu fólki til umhugsunar, hvernig halda menn að gangi að semja ef einhverjir í samningaliðinu vilja ekki semja,“ segir Steingrímur.
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Sjá meira