Innlent

Íslendingar erlendis geta kosið frá og með morgundeginum

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars 2010, hefst á morgun, 28. janúar. Í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu segir að utankjörfundaratkvæðagreiðslan fari fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg, Shanghai og Þórshöfn í Færeyjum.

„Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista. Búist er við því að kosið verði á u.þ.b. 235 stöðum í 84 löndum."

Þá er væntanlegum kjósendum vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar er að finna á vefsetrinu: www.kosning.is.

Athygli kjósenda er vakin á því, að þeim ber sjálfum að annast og kosta sendingu atkvæðabréfs síns og tryggja þannig að það berist í tæka tíða til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×