Innlent

Ný hjólaleið er í vegi reiðhjólaverkstæðis

Græn Hverfisgata. Hér er vandi Borgarhjóla í hnotskurn. Bíl lagt á hjólastíginn fyrir framan verkstæðið.
fréttablaðið/anton
Græn Hverfisgata. Hér er vandi Borgarhjóla í hnotskurn. Bíl lagt á hjólastíginn fyrir framan verkstæðið. fréttablaðið/anton

„Þetta er auðvitað nokkuð skrýtin staða. Fólk kemst ekki að hjólreiðaverkstæði fyrir nýjum hjólreiðastíg,“ segir James Fletcher, eigandi hjólreiðaverkstæðisins Borgarhjóla á Hverfisgötu 50.

Tímabundinn hjólreiðastígur var tekinn í notkun á Hverfisgötu í gær. Um tilraunaverkefni á vegum Reykjavíkurborgar er að ræða til að efla mannlíf í miðborginni og hvetja til aukinna hjólreiða.

James lýsir ánægju sinni með framtak yfirvalda um að efla hjólreiðamenninguna í borginni. Hann er hins vegar gagnrýninn á hvernig staðið er að framkvæmdinni. „Það var enginn fyrirvari gefinn. Þeir voru byrjaðir þegar bréfið kom inn um lúguna hjá mér.“

Hann óttast að hann verði af viðskiptum vegna þess að stígurinn hefur verið lagður fyrir framan verkstæðið. „Menn verða að átta sig á því að flestir sem koma hingað með bilað hjól koma akandi.“

James huggar sig þó við að um tilraunaverkefni sé að ræða og hyggst koma áhyggjum sínum á framfæri við umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur.

35 gjaldskyld bílastæði á Hverfisgötu verða helguð hjólreiðum í þessari tilraun sem stendur út septembermánuð. Á næsta ári er fyrirhugað að bæta við tíu kílómetrum af hjólaleiðum í borginni og mun tilraunin á Hverfisgötu verða nýtt til upplýsingaöflunar um þá framkvæmd. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×