Erlent

Petraeus tekur við í Afganistan

Hershöfðinginn David Petraeus með Obama. Petraeus er orðaður við forsetaframboð árið 2012.
Hershöfðinginn David Petraeus með Obama. Petraeus er orðaður við forsetaframboð árið 2012. Mynd/AFP

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur tilkynnt að hershöfðinginn David Petraeus verði eftirmaður Stanley McChrystal sem yfirmaður fjölþjóðahersins í Afganistan. Obama rak McChrystal í dag vegna gagnrýni hans á framgöngu ríkisstjórnar Obama í Afganistan. Í viðtali við Rolling Stone gagnrýndi hann Obama og ýmsa áhrifamenn.

Petraeus gegndi áður sambærilegri stöðu í Írak fram í september 2008 og þótti hann standa sig vel þar. Áður hefur komið fram að Obama er mikll aðdáandi hans.

Petraeus hefur verið orðaður við forsetaframboð fyrir Repúblíkanaflokkinn eftir tvö ár.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×