Enn meiri ofveiði í krafti ESB-styrkjanna 3. apríl 2010 06:00 Skip við bryggju í Portúgal. nordicphotos/AFP
Styrkveitingar Evrópusambandsins í sjávarútvegi hafa orðið til þess að auka ofveiði frekar en að draga úr henni, samkvæmt nýrri skýrslu frá rannsóknarstofnuninni Pew Environment Group. Evrópusambandið hefur reynt að draga úr fiskveiðum með því að greiða sjávarútvegsfyrirtækjum fyrir að taka eitthvað af skipum sínum úr notkun. Vandinn er sá, segir í skýrslunni, að útgerðir hafa fengið meira fé til að smíða ný skip og endurnýja þau gömlu heldur en veitt hefur verið til þess að fækka fiskveiðiskipum. Þannig hafa útgerðir í raun aukið fiskveiðigetu sína með beinum fjárstuðningi Evrópusambandsins. „Fé úr opinberum sjóðum hefur verið notað til að styrkja ofveiði með skelfilegum afleiðingum fyrir lífið í hafinu,“ segir Markus Knigge, framkvæmdastjóri hjá Pew Environment Group. „Það ætti ekki að fjármagna neitt slíkt lengur.“ Samkvæmt skýrslunni fengu tíu ríki megnið af heildarstyrkveitingu ESB til sjávarútvegs á árunum 2000 til 2006. Spánn fékk mest, en hin fiskveiðiríkin eru Ítalía, Frakkland, Grikkland, Danmörk, Bretland, Portúgal, Þýskaland, Pólland og Svíþjóð. Pólland er eina ríkið sem notaði meirihluta styrkjanna til að draga úr ofveiði.- gb
Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Innlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent „Við erum bara að mótmæla“ Innlent Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Erlent „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Sjá meira