Samið um frumhönnun nýs Landspítala 27. ágúst 2010 11:15
Gengið hefur verið frá samningi um frumhönnun og gerð útboðsgagna milli SPITAL hópsins, sem bar sigur úr bítum í sumar í hönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala, og hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf., sem stofnað var í vor til að standa að undirbúningi og útboði á byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Útboðsgögn vegna fyrstu framkvæmda eiga að liggja fyrir síðsumars 2011. Samkomulagið var undirritað í dag að viðstöddum heilbrigðisráðherra, rektor Háskóla Íslands og forstjóra Landspítalans. Fram kemur í tilkynningu til fjölmiðla að samkomulagið tekur til deiliskipulags af Landspítalalóðinni, ásamt umhverfismati áætlana og frumhönnun nýbygginga samkvæmt vinningstillögu SPITAL í hönnunarsamkeppninni. Frumhönnunin nær til meðferðarkjarna, rannsóknastofuhúss, sjúkrahótels, háskólabygginga og bílastæðahúss. Þá tekur samkomulagið einnig til tenginga nýbygginga við eldri byggingar með undirgöngum og brúm, bæði fyrir umferð og flutninga.Samkomulagið í dag undirrituðu Gunnar Svavarsson, stjórnarformaður hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf., og Arinbjörn Friðriksson, stjórnarformaður SPITAL hópsins.SPITAL hópnum, sem samanstendur af ASK arkitektum, Bjarna Snæbjörnssyni arkitekt, Kanon arkitektum, Medplan, Teiknistofunni Tröð, Landark, Eflu verkfræðistofu, Lagnatækni og Norconsult, fær ríflega 790 miljónir króna fyrir verkið og á að skila því í skilgreindum áföngum. Útboðsgögn vegna fyrstu framkvæmda eiga að liggja fyrir síðsumars 2011.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Fleiri fréttir Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Sjá meira