Innlent

Áhyggjur af stöðu dómstóla

Í grundvallaratriðum er íslensk stjórnsýsla skilvirk og málefnaleg og laus undan pólitískum afskiptum. Hún stendur traustum fótum í sömu grunngildum og einkenna stjórnsýslu Evrópusambandsríkjanna, að því er fram kemur í greiningarskýrslu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vegna aðildarumsóknar Íslands.

Þó er lýst áhyggjum af sterkum ítökum dóms- og mannréttindaráðherra í málefnum dómsvaldsins og ákæruvaldsins.

„Það er svigrúm til úrbóta á ferli sem fylgt er við skipun dómara í því skyni að tryggja betur sjálfstæði dómsvaldsins," segir í skýrslunni.

Þar sem dómsmálaráðherra skipi einn dómara í embætti að fengnum ráðgefandi umsögnum valnefndar eða Hæstiréttar vakni spurningar um raunverulegt sjálfstæði íslenskra dómara. Einnig er fundið að því að ráðherra geti tekið ákvörðun um að víkja dómara og saksóknara tímabundið úr embætti og að ekki sé hægt að kæra úrskurði nefndar um dómarastörf til hærra setts stjórnvalds. - pg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×