Útlit á göngum stöðvarinnar verði óbreytt 17. mars 2010 03:30 Herbergjaskipan nýja hótelsins Arkþing hefur gert frumtillögu að því hvernig koma megi fyrir 90 hótelherbergjum í Heilsuverndarstöðinni. MYNd/Arkþing „
Fyrstu athuganir á mögulegum breytingum á húsnæðinu og kostnaði benda til að þær eru innan þeirra marka að áhugi er fyrir hendi að láta reyna á þessar hugmyndir um hótelrekstur í húsnæðinu,“ segir Sigurður Hallgrímsson arkitekt í bréfi sem hann sendir fyrir hönd Icelandair Hotels til borgaryfirvalda um Heilsuverndarstöðina á Barónsstíg. Sigurður segir ætlunina að reka einfalt ferðamannahótel með áherslu á sölu á gistingu og morgunverði. „Reiknað er með að hægt verði að ná um 90 herbergjum til útleigu, bæði með og án snyrtinga,“ segir í bréfi Sigurðar sem kveður þetta mundu verða „spennandi kostur fyrir nútíma ferðamanninn, þar sem um er að ræða einstaka staðsetningu í miðborginni í nálægð við Laugaveginn, Skólavörðuholtið og Sundhöll Reykjavíkur“. Þá segir Sigurður að mikið sameiginlegt rými í húsinu eigi að nota til afþreyingar fyrir hótelgesti. Nokkrar breytingar þurfi að gera á húsnæðinu. „Fyrst og fremst er þar um að ræða, að koma fyrir salernum tengdum hótelherbergjunum,“ segir Sigurður sem minnir á að húsið sé að hluta til verndað. Hugmyndin sé að ekki verði hróflað við útliti hússins og að útlit ganga og sameiginlegra rýma haldist óbreytt. Einungis verði breytt veggjum eða veggjaskipan milli útveggja hússins og berandi gangaveggja. „Þessar breytingar munu því ekki sjást er komið er inn í húsið eftir framkvæmdir.“ - gar
Mest lesið Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Innlent „Alvarlegasta árásin gegn dönskum innviðum til þessa“ Erlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Innlent Óttaslegnir eldri borgarar eftir endurtekna eldsvoða Innlent Fóru með fleipur um einhverfu og bóluefni Erlent Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Innlent Opna í Kaupmannahöfn en loka loftrýminu yfir Osló einnig vegna dróna Erlent Duterte ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu Erlent Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Innlent Björg ætlar að láta að sér kveða í Viðreisn Innlent Fleiri fréttir Telja sig vita hverjir grímuklæddu mennirnir eru Ferðum aflýst og einni vél snúið við vegna drónaumferðar í Kaupmannahöfn Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Aðeins helmingur telur sig við góða heilsu Rannsaka húsbrot og eldsvoða á Sauðárkróki Krefur Reykjavíkurborg um frekari svör vegna fundargerðar Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Rannsaka mál sex grímuklæddra manna sem réðust á einn Óttaslegnir eldri borgarar eftir endurtekna eldsvoða Vill frekar fjölga lögreglumönnum heldur en lögreglustöðvum Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Björg ætlar að láta að sér kveða í Viðreisn „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ 20 börn frá Grænlandi í sundi, skautum og í heimsókn hjá forsetanum Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Þrír enn í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls Löng bið eftir að nauðgari hefji afplánun og betlmenning Sleppt lausum eftir yfirheyrslu Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Stefnir í prófkjör, borgarfulltrúar undir feldi og hugsanlega sótt að Heiðu Framlengja gistiheimildina fram á vor Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar „Nauðsynlegt að þetta verði gert af krafti“ Fólk hvatt til að taka strætó Frakkar viðurkenna Palestínu og nýr geðspítali gæti risið í Fossvogi „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Nú má heita Ívalú, Þorbirna og Emerentíana Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Sjá meira