Innlent

Þrjátíu börn fengu ókeypis tannlæknaþjónustu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tannlæknar gáfu börnunum tannviðgerðir. Mynd/ Hari.
Tannlæknar gáfu börnunum tannviðgerðir. Mynd/ Hari.
Þrjátíu börn á aldrinum 6 til 18 ára frá efnalitlum fjölskyldum hafa undanfarið fengið ókeypis tannviðgerðir hjá tíu tannlæknum. Tannlæknarnir buðu börnunum þessa þjónustu í gegnum Fjölskylduhjálp Íslands.

Ásgerður Jóna Flosadóttir framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálparinnar er þakklát tannlæknunum fyrir aðstoðina. "Þetta er mjög brýnt verkefni, enda tók aðeins um tvær klukkustundir að fylla kvótann, sem tannlæknarnir buðu uppá. Þeir eiga þakkir skildar," segir Ásgerður Jóna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×