Innlent

Fimm leituðu til læknis eftir bilveltu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan. Mynd/ Pjetur.
Lögreglan. Mynd/ Pjetur.
Fimm stúlkur voru fluttar til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja eftir að bifreið þeirra lenti út af veginum á Fellavegi rétt fyrir ofan byggðina í Vestmannaeyjum um ellefuleytið i gærkvöld.

Ein stúlkan var undir eftirliti hjá Heilbrigðisstofnuninni yfir nótt, en hún fann til verkja í höfði og í baki, að sögn lögreglumanna.

Slysið var með þeim hætti að ökumaður missti stjórn á bílnum og fór hann út af veginum og valt. Bíllinn eyðilagðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×