Innlent

Rúmlega 40 bifreiðar á Eyjafjallajökli

Lögreglumaður í hálendiseftirliti í gær. Myndin er tekin á Hvolsvelli.
Lögreglumaður í hálendiseftirliti í gær. Myndin er tekin á Hvolsvelli.
Lögreglan á Hvolsvelli með aðstoð Landhelgigæslunnar hefur verið með sérstakt hálendiseftirlit á láði og í lofti um páskahelgina. Sérstaklega hefur verið verður fylgst með ástandi ökumanna, bæði hvað varðar ölvunar-, fíkniefna- og svo utanvegarakstur.

Í gær var meðal annars flogið um Emstrur, Landamannalaugar og yfir Eyjafjallajökul. Ökumenn jeppa, snjósleða og annarra farartækja voru látnir gefa öndunarpróf og var enginn undir áhrifum áfengis.  

Fáir voru í Landmannalaugum og allt reyndist þar vera í besta lagi. Síðan var flogið yfir Eyjafjallajökul. Á bilinu 30 til 40 jeppabifreiðar voru á jöklinum þegar þyrlan fór þar um. Fjórtán ökumenn voru stöðvaðir og rætt við þá. Allir framvísuðu þeir ökuskírteini sínu og gáfu öndunarpróf. Þeir reyndust allir vera í ökufæru ástandi.

„Þeir sem lögreglan ræddi við lýstu yfir ánægju sinni með þetta eftirlit og sögðu þetta þarft verkefni,“ að fram kemur í frétt á vef lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×