Ólafur Ragnar fær eintak af hljóðbók MND félagsins 25. maí 2009 14:46 Forseti Íslands tekur við fyrstu hljóðbókinni frá formanni MND félagsins. "
Björt framtíð" er safn greina eftir 49 höfunda sem komin er út á hljóðbók á vegum MND félagsins. Höfundar greinanna koma úr ýmsum áttum en meðal þeirra eru: forseti og biskup Íslands, bæjarstjórar, húsmóðir, prófessorar, verkstjórar, iðnaðarmaður, forstjórar, klæðskeri og prestar. Í tilefni af útgáfunni bauð MND félagið greinahöfundum og aðstandendum verksins til fundar í Fjörugarðinum í Hafnarfirði í hádeginu í dag þar sem Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands var afhent fyrsta eintakið af hljóðbókinni. „Af hálfu MND félagsins er útgáfunni ætlað að vera mótvægi við þeim slæmu fréttum sem dunið hafa á íslensku þjóðinni undanfarna mánuði og er það von félagsins að útgáfan verði þeim sem á hlýða til uppörvunar og stuðli um leið að aukinni ánægju og vellíðan þjóðarinnar," segir í tilkynningu frá félaginu. „Það má segja að félagið sé með þessu að benda fólki á mikilvægi þess að missa aldrei vonina.Við sem erum MND veik höfum lifað við lyfjakreppu og án lækningar í 100 ár. Ef þessar greinar vekja einstaka bros og von hjá þeim sem á hlýða þá er takmarkinu náð. Það sem heldur okkur í MND félaginu gangandi og eykur lífsgæði okkar í þessu svartnætti, er vonin og það að sjá ljósglætu framundan," segir Guðjón Sigurðsson formaður MND félagsins. Upplestur á hljóðdisknum „Björt framtíð" skiptist þannig að ávarp formanns MND félagsins og kynningar les Pálmi Gestsson leikari. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson les eigin grein en aðrar greinar lesa leikararnir Álfrún Helga Örnólfsdóttir og Friðrik Friðriksson. Hljóðbókin er safn þriggja hljóðdiska og verður hún seld í símasölu næstu vikurnar. Einnig verður hægt að panta hana í gegnum heimasíðu MND félagsins www.mnd.is Gangi salan vel mun ágóðinn renna í rannsóknasjóð félagsins auk þess sem hann verður nýttur til stuðnings ýmsum verkefnum sem félagið vinnur að um þessar mundir og til að styrkja MND sjúka til tækjakaupa og fagfólk sem vill leita sér aukinnar þekkingar.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Fleiri fréttir Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Sjá meira