Innlent

Rannsaka ofbeldisbrot og fjárkúganir

framlenging Fimm Litháar voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 30. desember í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Sá hluti málsins er snýr að mansalsþætti þess hefur verið sendur til Ríkissaksóknara.
framlenging Fimm Litháar voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 30. desember í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Sá hluti málsins er snýr að mansalsþætti þess hefur verið sendur til Ríkissaksóknara.
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar enn nokkur hliðarmál við mansalsmálið svonefnda. Þar má nefna innbrot, handrukkanir, innheimtu „verndartolla“ og ofbeldisbrot, sem fimm litháískir menn eru grunaðir um aðild að.

Mennirnir fimm voru í gær úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 30. desember. Þeir eru ekki lengur í einangrun en sæta nú svokallaðri lausagæslu á Litla-Hrauni. Lögreglan hefur lokið rannsókn á mansalsþætti málsins og sent það til Ríkissaksóknara.

Upphaf þessarar umfangsmiklu rannsóknar má rekja til þess er nítján ára litháísk stúlka kom hingað til lands með flugi frá Varsjá í Póllandi í október. Grunur vaknaði um að hún hefði verið flutt til landsins sem fórnarlamb mansals og hófust handtökur í framhaldi af því.

Þrír Íslendingar sættu gæsluvarðhaldi um tíma vegna lögreglurannsóknarinnar. Sá þeirra sem lengst sat inni var grunaður um aðild að mansalsþættinum og sat í gæsluvarðhaldi á grundvelli þess. Meðal annars höfðu þrír Litháanna unnið hjá fyrirtæki sem hann rekur. Rannsóknargögn lögreglu varðandi meinta aðild hans að mansalsmálinu hafa einnig verið send til Ríkissaksóknara, sem tekur ákvörðun um hverjir verða ákærðir og hverjir ekki.

Umræddur einstaklingur var einnig grunaður um að hafa óhreint mjöl í pokahorninu varðandi bruna í ágúst síðastliðnum á húsnæði sem hann átti í Grundarfirði. Forræði þess máls er nú komið til Lögreglustjórans í Stykkishólmi.

Mennirnir fimm sem enn sitja í gæsluvarðhaldi eru þekktir að ofbeldisverkum hér á landi. Sumir þeirra tengjast árás á óeinkennisklæddan lögreglumann sem var við fíkniefnaeftirlit á Laugavegi í janúar 2008. Þá veittist hópur manna að honum með höggum og spörkum. Hann fékk heilahristing og sár víðs vegar á líkamanum.

Þá tengjast sumir þeirra sem inni sitja hrottalegri líkams­árás í húsi við Grettisgötu í byrjun júní. Sá sem ráðist var á hlaut lífshættulega áverka af árásinni, sem stóð næturlangt. Hann þurfti að vera um skeið í öndunarvél.

Þriðja líkamsárásin þar sem sumir gæslufanganna koma við sögu var í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík, einnig í júní. Þá var ráðist á mann og hann illa leikinn. Hann hlaut brot í andliti og marga langa og gapandi skurði á höfði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×