Komst áfram í keppni um framtíð flugiðnaðarins 20. janúar 2009 10:11
Íslenskt lið frá Háskóla Íslands komst í aðra umferð í Fly Your Ideas keppninni sem Airbus efndi til 14. október síðastliðinn. Keppnin snýst um að efla vistvirkni flugvélaiðnaðarins og fá sigurvegararnir 30.000 evrur í verðlaun. Tvö lið frá Norðurlöndunum komust í aðra umferð, en lið frá 130 háskólum í 82 löndum luku fyrstu umferð keppninnar. Lið Háskóla Íslands skipa þeir Arnar Lárusson, Andrés Gunnarsson og Ásgeir Bjarnason. Hugmynd þeirra er að setja þunnar sólarorkusellur á flugvélar sem framleiða rafmagn fyrir farþegarýmið, það er ljós, loftkælingu, afþreyingarkerfi og fleira. Þannig væri hægt að minnka kolefnisútblástur flugvélanna auk þess sem í þessu fælist mikill sparnaður fyrir flugfélögin. Samkvæmt hugmyndum þeirra fer rafmagn úr sólarorkusellunum beint inn á kerfið þegar aðstæður eru hagstæðar en þegar þær eru óhagstæðar, til dæmis í næturflugi, er hefðbundið kerfi notað. Þetta kemur fram í tilkynningu. Í annarri umferð munu liðin þróa tillögur sínar áfram og svo verða fimm bestu liðin valin í þriðju og síðustu umferðina sem endar á kynningu á Le Bourget flugsýningunni í París í júní 2009. Það lið sem kemur með þá tillögu sem talin er hafa mesta möguleika á að verða að veruleika og minnka koltvísýrings útblástur fær 30.000 evrur í verðlaun. Mikil þátttaka var í Fly Your Ideas keppninni, 2.350 nemendur skráðu sig til þátttöku og 225 lið frá 130 háskólum í 82 löndum luku fyrstu umferð keppninnar. Liðin sem komust áfram í aðra umferð eru 86 talsins. Tvö lið frá Norðurlöndunum komust áfram, eitt lið frá Íslandi og eitt frá Danmörku.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Sjá meira