Vill opinbera rannsókn á hagsmunatengslum Óskars 26. febrúar 2009 12:46 Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi F-listans og Óskar Bergsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins.
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, hyggst leggja fram á næsta borgarstjórnarfundi tillögu um að fram fari opinber rannsókn á hagsmunatengslum Óskars Bergssonar, formanns borgarráðs, við byggingarverktaka í borginni. Ólafur segir að Óskar hafi að undanförnu orðið uppvís að grófri misbeitingu starfs síns sem formaður borgarráðs. Auk þess hafi komið fram fjöldi ásakana og vísbendinga um að Óskar hafi gengið erinda byggingarverktaka, sem hann hafi tengsl við, á kostnað borgarbúa.Meirihlutinn víkur sér undan óþægilegum spurningum Fram kemur í tilkynningu frá Ólafi að hann hafi lagt fram fyrirspurn í borgarráði í morgun en Óskar hafi slitið fundi á meðan að verið var að ganga frá fyrirspurninni. Ólafur segir óljóst hvort að fyrirspurnin verði færð til bókar en ljóst sé að meirihlutinn víki sér undan því að svara óþægilegum spurningum. Þessi mál verði því á dagskrá næsta borgarstjórnarfundar. Fyrirspurn Ólafs: ,,Að undanförnu hefur verið greint frá því í fjölmiðlum m.a. í þættinum Silfur Egils í RÚV að Reykjavíkurborg hafi gert skuldbindandi leigusamninga við byggingarfélagið Eykt fyrir milljarða króna. Fullyrt var í þættinum að þessi milljarðaútgjöld sem og aukning á byggingarmagni á Höfðatorgsreit væru hluti af samkomulagi í kjölfar meirihlutamyndunar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks vorið 2006. Því er spurt: 1. Hvenær var ákvörðun tekin um skuldbindandi leigusamning fyrir milljarða króna og aukið byggingarmagn á Höfðatorgsreit? 2. Hver var aðkoma þáverandi borgarfulltrúa og varaborgarfulltrúa Framsóknarflokksins, þeirra Björns Inga Hrafnssonar og Óskars Bergssonar, að þessum málum? 3. í hvaða ráðum og nefndum borgarinnar sátu þessir sömu kjörnu fulltrúar Framsóknarflokksins á fyrra valdatímabili Framsóknarflokks og Sjálfstlæðisflokks í borginni og hvaða stöðu sköpuðu þessar nefndasetur fyrir fulltrúa Framsóknarflokksins til að hafa áhrif á framgang þessa dýra leigusamnings, sem og að hafa áhrif á aukið byggingarmagn á Höfðatorgi? 4. Nauðsynlegt er að upplýst verði hvaða byggingarverktakar á höfuðborgarsvæðinu hafa verið vinnuveitendur Óskars Bergssonar eða eru í nánum perónulegum tengslum við borgarfulltrúann? Vill borgarstjóri svara þeirri spurningu eða telur hann það ekki í sínum verkahring? Ef svo er þá hlýtur undirritaður að krefjast þess að fram fari opinber rannsókn á tengslum Óskars Bergssonar við byggingarverktaka í borginni, enda hafa ýmsir haldið því fram að sumir kaup- og leigusamningar á lóðum, sem borgin hefur heimilað séu "gersamlega út í hött" og að spor Óskars liggi langt aftur í þeim efnum. Miðað við grófa misbeitingu hans á starfi formanns borgarráðs að undanförnu verður að upplýsa þessi mál öll og áðurnefnd hagsmunatengsl hans."
Tengdar fréttir Óskar upplýsi um tengsl sín við Eykt Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, hefur óskað eftir því að Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og formaður borgarráðs, upplýsi um tengsl sín við byggingarfélagið Eykt. Ólafur vill einnig vita hverjir sátu umtalaðan ,,Framsóknarfögnuð" í Ráðhúsinu 14. nóvember. Hann segir að vísbendingar séu um að þar hafi vinir eða kunningjar Óskars einnig verið boðnir á kostnað borgarbúa. 19. febrúar 2009 09:25 Óskar gagnrýndur af flokksbróður Friðrik Jónsson, formaður Framsóknarflokksins á Akranesi og frambjóðandi um oddvitasæti flokksins í Norðvesturkjördæmi, gagnrýnir harðlega Óskar Bergsson, flokksbróður sinn og formann borgarráðs, fyrir að hafa sýnt dómgreindarskort vegna móttöku sem hann hélt fyrir framsóknarmenn í Ráðhúsinu og varðandi málefni Eyktar. 20. febrúar 2009 09:34 Upplýsir ekki hvort Eykt hafi stutt sig Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, upplýsir ekki hvort verktakafyrirtækið Eykt hafi stutt sig í prófkjörsbaráttu Framsóknarflokksins árið 2006. Óskar telur nauðsynlegt að leikreglur kjörinna fulltrúa séu skýrar. 19. febrúar 2009 17:38 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Fleiri fréttir „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sjá meira
Óskar upplýsi um tengsl sín við Eykt Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, hefur óskað eftir því að Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og formaður borgarráðs, upplýsi um tengsl sín við byggingarfélagið Eykt. Ólafur vill einnig vita hverjir sátu umtalaðan ,,Framsóknarfögnuð" í Ráðhúsinu 14. nóvember. Hann segir að vísbendingar séu um að þar hafi vinir eða kunningjar Óskars einnig verið boðnir á kostnað borgarbúa. 19. febrúar 2009 09:25
Óskar gagnrýndur af flokksbróður Friðrik Jónsson, formaður Framsóknarflokksins á Akranesi og frambjóðandi um oddvitasæti flokksins í Norðvesturkjördæmi, gagnrýnir harðlega Óskar Bergsson, flokksbróður sinn og formann borgarráðs, fyrir að hafa sýnt dómgreindarskort vegna móttöku sem hann hélt fyrir framsóknarmenn í Ráðhúsinu og varðandi málefni Eyktar. 20. febrúar 2009 09:34
Upplýsir ekki hvort Eykt hafi stutt sig Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, upplýsir ekki hvort verktakafyrirtækið Eykt hafi stutt sig í prófkjörsbaráttu Framsóknarflokksins árið 2006. Óskar telur nauðsynlegt að leikreglur kjörinna fulltrúa séu skýrar. 19. febrúar 2009 17:38