Starfslokabæjarstjórinn græðir 10 milljónir á húsasölu til bæjarins 14. janúar 2009 22:15 Ólafur Örn Ólafsson, fyrrum bæjarstjóri í Grindavík.
Grindavíkurbær hefur keypt einbýlishús Ólafs Arnar Ólafssonar, fyrrum bæjarstjóra, fyrir fimmtíu milljónir króna. Kaupin eru hluti af starfslokasamningi Ólafs sem lét af störfum í sumar en verður á launum til seinnihluta ársins 2010. Í ráðningarsamningnum er ákvæði sem skuldbatt Grindavíkurbæ til að kaupa einbýlishús Ólafs tækist honum ekki að selja það sex mánuðum eftir starfslok. Húsið var keypt á rúmar 40 milljónir króna árið 2007. Mismunurinn er því rúmar 10 milljónír. Ólafur sagði í samtali við fréttastofu að vísitala hafi hækkað frá því að húsið var sett á sölu í sumar. ,,Verðið var miðað við ákveðna vísitölu í ráðningarsamningnum. Þannig að það er ekki hægt að segja húsið hafi hækkað í verði." Á launum í 28 mánuði frá starfslokum Ráðningarsamningur Ólafs komst í hámæli í sumar þegar upp úr slitnaði í meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Í framhaldinu mynduðu framsóknarmenn nýjan meirihluta með Samfylkingunni og lét Ólafur á þeim tímamótum af störfum sem bæjarstjóri. Ráðningartími Ólafs var út yfirstandandi kjörtímabil og af því loknu fær hann að auki sex mánaða laun. Næstu sveitarstjórnarkosningar fara fram í maí 2010. Í heildina mun Ólafur því fá greidd laun í 28 mánuði frá starfslokum. Ólafur segir samninginn í samræmi við lög Spurður í kvöld hvort að ráðningarsamingurinn hafi verið eðlilegur sagðist Ólafur ekki hafa ætlað að tjá sig um samninginn. Samt sem áður benti hann á lög um tímabundnar ráðningar og fullyrti að samningurinn væri í fullu samræmi við þau lög. ,,Þessi samningur er bara í samræmi við lögin þannig að hann er hvorki verri né betri heldur en aðrir sambærirlegir samningar." Aðspurður hvort hann sé stoltur af ráðningarsamningnum sagði Ólafur: ,,Hvort ég er stoltur af honum. Þetta er bara samningur á milli tveggja aðila sem verið er að uppfylla að báðum aðilum. Ég réð mig í ákveðin tíma og var tilbúinn að standa við það." Kostnaður bæjarfélagsins við launahlutann 42 milljónir Mánaðarlaun Ólafs voru rúmlega 1,2 milljónir króna og þau voru jafnframt verðtryggð. Heildarkostnaður Grindavíkurbæjar með launatengdum gjöldum við launahluta samkomulagsins er yfir 42 milljónir króna. Þegar núverandi meirihluti tók við 14. júlí voru laun bæjarstjóra lækkuð um 20%. Auk þess hefur sitjandi bæjarstjóri ekki samskonar ákvæði og Ólafur hafði um húsnæði sitt í ráðningarsamningi sínum.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira