Dómsmálaráðherra undirritaði landamærasamning við ESB 30. nóvember 2009 15:48 F.v. Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra, Beatrice Ask, dómsmálaráðherra Svíþjóðar sem fer jafnframt með formennsku í ráðherrraráðinu, og Jacque Barrot, varaforseti framkvæmdstjórnar Evrópusambandsins.
Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra undirritaði í Brussel í dag samning við Evrópusambandið um eflingu lögreglusamstarfs yfir landamæri, einkum í baráttunni gegn hryðjuverkum og glæpastarfsemi. Samningurinn, sem jafnan er kallaður Prüm-samningurinn, felur m.a. í sér gagnkvæman uppflettiaðgang aðildarríkja ESB, Íslands og Noregs að fingrafara- og erfðaefnisskrám lögreglu, sem og að ökutækjaskrám. Með samningnum eru ákvæði tveggja gerða ESB tekin upp á Íslandi og segir Ragna að með þessu samstarfi séu lögreglu veittar nýjar og auknar heimildir í baráttunni gegn glæpastarfsemi yfir landamæri og um sé að ræða mikilvægt framfaraskref í alþjóðlegu lögreglusamstarfi. Gert er ráð fyrir að öll aðildarríki ESB verði tæknilega tilbúin til að skiptast á upplýsingum úr gagnabönkum á síðari hluta árs 2011. Ragna sat einnig fund í dag í samsettu nefndinni í Brussel með dómsmála- og innanríkisráðherrum ESB- og Schengen-ríkja. Umræðuefni fundarins var m.a. staða tveggja upplýsingakerfa á sviði Schengen-samstarfsins, Schengen-upplýsingakerfisins (SIS) og nýs upplýsingakerfis um vegabréfsáritanir (VIS). Vinna við stækkun Schengen-upplýsingakerfisins (SIS) stendur yfir en áætlunum um að taka stækkað kerfi í notkun hefur seinkað nokkuð. Þá er í smíðum nýtt upplýsingakerfi um áritanir (VIS) sem mun m.a. geyma fingraför og myndir af öllum einstaklingum sem sækja um vegabréfsáritun inn á Schengen-svæðið. Samkvæmt nýrri tímaáætlun, sem samþykkt var á fundinum, mun kerfið verða tilbúið til gangsetningar í desember á næsta ári. Þá var einnig rætt um nýja Evrópusambandsstofnun sem fyrirhugað er að setja á fót en henni er ætlað að hafa umsjón með þeim upplýsingakerfum sem nú eru starfrækt á sviði dóms- og innanríkismála; SIS, VIS og EURODAC, en hið síðastnefnda geymir upplýsingar um hælisleitendur. Þar sem Ísland er aðili að öllum þeim upplýsingakerfum sem stofnuninni er ætlað að reka mun það einnig eiga aðild að henni.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Fleiri fréttir Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Sjá meira