Enski boltinn

Yfirtökuskylda að myndast hjá Kroenke

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stan Kroenke.
Stan Kroenke.

Bandaríkjamaðurinn Stan Kroenke færðist skrefi nær því að eignast Arsenal í dag er hann keypti 25 hluti í félaginu á rúmlega 212 þúsund pund.

Kaupi Kroenke 17 hluti í vetur verður að hann að gera yfirtökutilboð í félagið.

Kroenke er þegar stærsti einstaki hluthafinn í Arsenal en hann á nú 29,9 prósent í félaginu.

Þessi 62 ára gamli Kani er enginn nýliði í rekstri íþróttafélaga en hann á fyrir NBA-liðið Denver Nuggets, NHL-liðið Colorado Avalanche og fótboltaliðið Colorado Rapids.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×