Vill takmarka vöxt bankanna 11. nóvember 2009 04:00 Christine Lagarde bendir á að fjárfestingabönkum hafi fækkað úr sex í þrjá í Bandaríkjunum eftir hrunið.
Aðgerðir ríkisstjórna víða um heim til bjargar fjármálageiranum kunna að leiða af sér fákeppni og markaðsmisnotkun á bankamarkaði. Svo mælir Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands. Lagarde hefur viðrað þessa skoðun sína við fjármálaráðherra tuttugu auðugustu iðnríkja heims fyrr á árinu og mun árétta hana á fundi með fjármálaráðherrum aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) í vikunni. Breska ríkisútvarpið (BBC) segir hana meðal annars hafa beðið ráðherrana um að kanna hvort bankar sem njóti ríkisstuðnings hafi aukið markaðshlutdeild sína í skugga þess stuðnings. BBC nefnir sem dæmi að bandaríski risabankinn Citigroup og sá breski Royal Bank of Scotland hafi notið stuðnings stjórnvalda þegar alvarlega kreppti að þeim í fjármálahruninu fyrir rúmu ári. Máli sínu til stuðnings hefur Lagarde bent á að fyrir hrun hafi sex fjárfestingarbankar verið starfræktir í Bandaríkjunum. Þeir eru nú helmingi færri. Samkeppnisyfirvöld ESB hafa gripið til ýmissa ráða til að hamla vexti banka innan aðildarríkjanna sem notið hafa opinbers stuðnings frá í fyrra. Þar á meðal eru kröfur um aukið eiginfjárhlutfall þeirra, uppstokkun á rekstri þeirra og sala eigna.- jab
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira