Bloggskrif kennara valda fjaðrafoki 15. september 2009 03:30 Aðstoðarskólastjóri segir bloggfærslu heimiliskennarans afar óheppilega.fréttablaðið/vilhelm „
Málið verður tekið fyrir innan skólans. Það er spurning hversu vel þeir sem hafa þessar skoðanir eru til þess fallnir að vinna samkvæmt jafnréttisáætlun Reykjavíkurborgar, Hagaskóla eða annarra skóla,“ segir Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla. Bloggfærsla Guðrúnar Þóru Hjaltadóttur, sem kennir heimilisfræði við skólann, um Pólverja vakti athygli í gær. Í færslunni segir Guðrún að of margir Pólverjar brjóti af sér miðað við höfðatölu hér á landi. Einhverjir þeirra þiggi bætur og vinni samtímis og þeir svindli á kerfinu með því að skrá sig ekki í sambúð til að fá hærri bætur. Guðrún spyr hvort ekki sé hægt að senda þessa brotamenn heim, þótt þeir hafi ekki fengið dóm. Það sé ódýrara en að láta þá hálffylla íslensk fangelsi. „Svo finnst mér lágmark að þeir reyni að læra íslensku svo þeir geti gert sig skiljanlega. Það er hér fólk sem búið er að vera í yfir þrjú ár og talar ekki orð í íslensku,“ segir í færslunni. Að sögn Ómars talar Guðrún ekki í nafni Hagaskóla. „En það er ákaflega óheppilegt að starfsmenn uppeldisgeirans hafi svona skoðanir, og líka að þeir finni hjá sér þörf til að viðra þær,“ segir Ómar. Auðvelt sé að finna út að Guðrún sé starfsmaður Hagaskóla þótt það komi ekki fram á síðunni. Nokkur börn af pólskum uppruna stunda nám við Hagaskóla. Guðrún Þóra segir að bloggfærslur sínar komi kennslunni ekkert við. Sjálf þekki hún dæmi um öll atriðin sem hún tali um í færslunni. „Ég skrái mig ekki sem kennara á bloggsíðunni. Utan skólans er ég bara persóna, sem má alveg hafa skoðun á því hverjir búa í landinu sem ég borga skatta í,“ segir Guðrún Þóra Hjaltadóttir, sem þó hafði í gærkvöldi fjarlægt færsluna.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ Sjá meira