Innlent

Fagna við þinghúsið

Frá Austurvelli
Frá Austurvelli

Boðað hefur verið til fagnaðar við Austurvöll nú þegar ljóst er að ríkisstjórnin er fallin. Nokkuð fámennur hópur er þegar mættur fyrir utan þinghúsið en sent var út fagnaðarboð á samskiptavefnum Facebook fyrr í dag.

Nú fundar forseti Íslands með forsætisráðherra á Bessastöðum en gert er ráð fyrir að forsetinn hitti alla forystumenn flokkanna sem sitja á þingi í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×