Hægara sagt en gert að loka fyrir persónuníð á netinu 2. október 2009 06:00 Íslenskir netnotendur geta komist í kringum lokun íslenskra fjarskiptafyrirtækja á ákveðnum vefsíðum. Einfalt er að finna upplýsingar um slíkt með leitarvél á borð við Google. Fréttablaðið/Vilhelm
Hugmynd Persónuverndar um lagabreytingu til að loka fyrir aðgang íslenskra netnotenda að síðum sem innihalda persónulegt níð myndi litlu breyta fyrir síður sem sérhæfa sig í birtingu slíkra upplýsinga. Þetta fullyrða sérfræðingar í tölvumálum sem Fréttablaðið hefur rætt við. Persónuvernd sendi dómsmálaráðherra nýlega bréf þar sem lagt er til að lögum verði breytt til að taka á vefsíðum sem birta persónulegar upplýsingar þvert gegn vilja fólks. Lagt var til að dómstólar fengju heimildir til að láta fjarskiptafyrirtæki loka á vefsíður sem brytu gegn friðhelgi einkalífsins. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra tók vel í hugmynd Persónuverndar og óskaði eftir því að réttarfarsnefnd fjallaði um málið. Sérfræðingar í tölvumálum segja slíkar lokanir í raun litlu skipta fyrir vefsíður sem geri út á birtingu slíkra upplýsinga. Auðvelt sé að komast í kringum slíkar lokanir, og í raun sé það á færi flestra netnotenda. Fréttablaðið hefur staðreynt að með því að nota leitarvélina Google má auðveldlega finna nokkrar leiðir til að komast inn á lokaðar síður. Íslensku fjarskiptafyrirtækin lokuðu nýverið fyrir aðgang íslenskra netnotenda að vefsíðunni ringulreid.org, og var sú aðgerðafræði sem beitt var að nokkru leyti kveikjan að hugmynd Persónuverndar. Á síðunni hafa ítrekað verið birtar myndir af fáklæddum íslenskum ungmennum og persónulegar upplýsingar um viðkomandi, sem notendur síðunnar setja inn. Fréttablaðið hefur staðreynt að þrátt fyrir að lokað eigi að vera fyrir aðgengi að síðunni frá Íslandi er hún enn starfandi og hægt að komast inn á hana frá Íslandi í gegnum krókaleiðir. Ringulreid.org er einkum notuð af ungu fólki og telja sérfræðingar fullvíst að flestir sem hafi á annað borð áhuga á því efni sem síðan birti geti komist þar inn. Ragna segist í samtali við Fréttablaðið hafa fengið ábendingar um þetta eftir umfjöllun Fréttablaðsins. Henni hafi verið tjáð að ómögulegt sé að setja lög um þetta sem taki alfarið fyrir að íslenskir netnotendur hafi aðgang að síðum sem brjóti íslensk lög. „En er ekki til þess vinnandi að senda þessar síður í undirdjúpin, frekar en að hægt sé að slá þeim upp? Menn verða þá að hafa fyrir því að komast að þessu,“ segir Ragna. „Það hlýtur að vera til einhver leið.“ brjann@frettabladid.is
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira