Innlent

Álftanesi skipað að ræða sameiningu

Gjaldþrot blasir við Það var ekkert sérstaklega hýrt yfir íbúum Álftaness á fundi með bæjarstjórn, ráðgjöfum og eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga í gærkvöldi.fréttablaðið/valli
Gjaldþrot blasir við Það var ekkert sérstaklega hýrt yfir íbúum Álftaness á fundi með bæjarstjórn, ráðgjöfum og eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga í gærkvöldi.fréttablaðið/valli

Meirihluti sveitarstjórnar Álftaness samþykkti í gær samkomulag við eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaganna. Samkvæmt því skal þegar hefja viðræður við önnur sveitarfélög um sameiningu við Álftanes. Þá verður lagt tíu prósenta álag á útsvar á næsta ári og álagning fasteignaskatta verður 0,4 prósent af álagningarstofni. Hún er í dag 0,28 prósent. Almennt á að lækka öll rekstrarútgjöld og auka tekjur, meðal annars með eignasölu.

Samgöngu- og sveitarstjórnar­ráðuneyti mun beita sér fyrir fyrir­framgreiðslu úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að greiða laun og forgangskröfur fyrir Álftanes upp á 185 milljónir króna.

Pálmi Þór Másson bæjarstjóri sagði á íbúafundi á Álftanesi í gærkvöld að þetta þýddi að sveitarfélagið myndi þegar í stað hefja viðræður við önnur sveitarfélög. „Það hefur ekki rætt um það hvaða sveitarfélög það eru, en Garðabær hefur verið títtnefndastur í því efni,“ sagði hann. Aðgerðirnar kæmu á versta tíma, því álögur ríkis hækkuðu um leið.

„Heildar­álögur á Álftnesinga verða talsvert hærri en á einstaklinga almennt,“ sagði hann. Ef samkomulagið hefði ekki verið undirritað hefði sveitarfélagið farið í þrot fyrir áramót.

Samkomulagið hefur einnig í för með sér að athugað verður hvaða ákvarðanir, allt frá 2005, hafi leitt bæinn í þá stöðu sem hann er í. Hvort þær hafi verið í samræmi við sveitarstjórnarlög og hvort upplýsingaskyldu hafi verið sinnt með fullnægjandi hætti.

Ólafur Nilsson, formaður eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, sagði á fundinum að sveitarstjórnin í heild sinni bæri einhverja ábyrgð á því hvernig komið er. Afar mikilvægt væri að hún snéri bökum saman og leitaði lausna á ástandinu.

Erling Ásgeirsson, formaður bæjarráðs í Garðabæ, segir að sameining við Álftanes yrði skoðuð undir jákvæðum formerkjum:

„Ég tel að það væri eðlilegur framgangsmáti að reyna fyrst sameiningu við Garðabæ.“

Erling leggur áherslu á að íbúar beggja sveitarfélaganna fengju að kjósa um sameininguna og bendir á að ríkisvaldið verði að afskrifa einhverjar skuldir Álftaness. Færi sveitarfélagið í þrot hefði það víðtækar afleiðingar fyrir lánshæfismat annarra sveitarfélaga. Inngrip í vanda Álftaness væru smáaurar í því samhengi.

klemens@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×