Í yfirlið þegar konan bar vitni Óli Tynes skrifar 19. október 2009 15:19 Dóttirin hvarf sporlaust.
Fjörutíu og níu ára gamall tyrkneskur maður hné í ómegin í réttarsal í Lundúnum í dag þegar eiginkona hans vitnaði gegn honum vegna morðsins á dóttur þeirra. Dóttirin sem var fimmtán ára varð ástfanginn af manni sem tilheyrði annarri grein múslimatrúarinnar en fjölskylda hennar. Þar sem hún hafði haft mök við manninn litu karlmennirnir í fjölskyldunni svo á að hún væri verðlaus eign, þar sem hún væri ekki lengur jómfrú. Auk þess hefði hún með framferði sínu bakað fjölskyldunni óbærilega skömm. Í ákæruskjali segir að vegna þessa hafi verið haldin fjölskylduráðstefna þar sem faðirinn og tveir frændur ákváðu að myrða bæði dótturina og elskhugann. Dóttirin hvaf sporlaust en föðurnum mistókst að drepa elskhugann þegar hann réðst á hann með exi tveim vikum síðar. Í vitnisburði sínum sagði móðirin að hún hefði verið mjög á móti sambandi dóttur sinnar við manninn. Hún byrjaði að lýsa lífi þeirra í Bretlandi, en gera varð frest á réttarhöldunum þegar bóndinn hné niður. Fáheyrt er að múslimakonur beri vitni gegn eiginmönnum sínum.
Mest lesið Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Innlent „Sá gamli er miklu fallegri“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Erlent Fleiri fréttir Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Sjá meira