Fyrirliði pókerlandsliðsins sakaður um svik og pretti 17. apríl 2009 03:30 Segir þá harða bak við lyklaborðið sem voga sér að efast um landsliðsfyrirliðatign hans. fréttablaðið/Arnþór „
Þeir eru harðir bak við lyklaborðið þessir gæjar. Gaman ef þeir myndu labba upp að stóra frænda sínum og segja að hann sé ekki lengur fyrir-liði. Ég er brjálaður,“ segir Egill „Gillzenegger“ Einarsson einkaþjálfari sem kallar sig „Störe“ um þessar mundir. Og það sem meira er – hann hikar ekki við að titla sig landsliðsfyrirliða Íslands í póker ef svo ber undir. Sem er umdeilt. Á síðu Pókersambands Íslands (PSÍ) er að finna tilkynningu þar sem segir að yfirlýsingar þekktra einstaklinga um stöðu sína í landsliði Íslands í póker hafi farið fyrir brjóstið á mörgum: „Það skal tekið skýrt fram að eins og staðan er í dag er ekki til neitt sem heitir landsliðsþjálfari eða opinbert landslið Íslands í póker. Það landslið sem hefur verið í umræðunni undanfarið er því einungis til í hugarheimi viðkomandi aðila,“ segir meðal annars í tilkynningunni. Ekki þarf að fara í grafgötur með hverjum skeytið er ætlað. Störe, sem er nýkominn frá Atlantic City þar sem hann spilaði póker, – og leit á það sem fína landsliðsæfingu – bregst ókvæða við tilkynningunni í samtali við Fréttablaðið. „Fyrir hvaða landslið var ég þá að halda ræðu áður en við kepptum nýverið á risastóru pókermóti í Portúgal? Fyrirliðinn tekur starf sitt mjög alvarlega, er að peppa strákana upp og þjálfa. Þetta er einhver rasshaus, einhver bólugrafinn netlúði sem hefur tekið sig til og búið til eitthvað sem heitir Pókersamband Íslands á Wordskjalið sitt. Ég get boðið honum í „Heads-on“ póker og þá sjáum við bara hver er fyrirliðinn. Ég skil vel að þetta fari í pirrurnar á sumum. Flestir pókerspilarar eru 30 kílóum of þungir en ég tek 170 kíló í bekknum, hleyp hundrað metrana á 11,2 og síðan „dedda“ ég 270 kílóum fyrir hádegi. Þetta eru tölurnar. Það er það sem er að frétta og skiljanlega...“ segir hinn yfirlýsingaglaði og reiði meinti landsliðsfyrirliði og hér verður að setja punktinn við ræðu hans því hún er komin yfir öll velsæmismörk. Á síðu PSÍ segir að eitt helsta markmið sambandsins sé að stuðla að því að póker í heimahúsum og mótapóker verði ótvírætt gerður löglegur á Íslandi og í framhaldinu verði staðið að Íslandsmóti í greininni og meistarinn sendur á alþjóðleg stórmót. Forseti er Eirný Sveinsdóttir en aðrir í stjórn eru Ólafur Helgi Þorkelsson, Georg Haraldsson, Ellert Magnason og Davíð Hansson. Talsmaður er hins vegar stjörnulögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson sem segist ekki vita til þess að til sé neitt landslið. Til sé hópur manna sem er sterkur í póker – atvinnumenn. „Sem er sérstakt því ákæruvaldið hélt því fram að póker grundvallist á heppni. Svo er ekki. Þetta er samspil ýmissa þátta svo sem sálfræði og stærðfræði, að reikna út líkur. Nokkrir Íslendingar eru atvinnumenn og hafa verið að keppa úti í heimi og náð góðum árangri. Egill er ekki þar á meðal. Hann hefur tekið þátt í mótum hér innanlands en ekki með sérstökum árangri – með fullri virðingu,“ segir Sveinn Andri.
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira