Uppgjöf meirihlutans á Álftanesi Magnús Már Guðmundsson skrifar 3. nóvember 2009 15:50 Mynd/GVA
Tillaga meirihlutans á Álftanesi um að kalla til Eftirlitsnefnd sveitarfélaga er tillaga um uppgjöf, að mati bæjarfulltrúa minnihlutans. Vegna fjárhagsvandræða hefur sveitarfélagið Álftanes óskað eftir aðkomu Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Það er mat meirihluta bæjarstjórnar bæjarfélagsins að verði ekkert að gert, eða gripið til viðeigandi ráðstafana varðandi fjármál bæjarsjóðs, muni stefna í verulegan greiðsluvanda hjá sveitarfélaginu. „Þetta er ámælisvert og eflaust einsdæmi að pólitískur meirihluti leggi til að sveitarfélag afsali sér fjárforræði án þess að leita fyrst allra mögulegra úrlausna og án þess að eiga sjálf viðræður við ráðherra sveitarstjórnarmála," segir í tilkynningu frá þremur bæjarfulltrúum Á-listans. Á-listinn fékk meirihluta í kosningunum 2006 og myndaði í kjölfarið meirihluta. Sá meirihluti liðaðist í sundur í sumar og í framhaldinu mynduðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og einn bæjarfulltrúa sem kjörin var fyrir Á-listann, Margrét Jónsdóttur, nýjan meirihluta. Bæjarfulltrúar Á-listans segja í yfirlýsingu sinni að Eftirlitsnefnd sveitarfélaga hafi vald til mögulegrar 25% hækkunar útsvars og fasteignagjalda á Álftnesinga og einnig vald til að setja í gang ferli sem leitt gæti til afnáms sjálfstæðs sveitarfélagsins. „Forysta Á-lista ítrekar nauðsyn þess að Sjálfstæðisfélagið og Margrét Jónsdóttir láti af völdum og að bæjarstjórn allra bæjarfulltrúa taki við og vinni samstíga að lausn skammtíma fjárhagsvanda sveitarfélagsins og nái samningum um langtímalausn með viðræðum við ríkisvaldið án aðkomu Eftirlitsnefndarinnar," segir í yfirlýsingu bæjarfulltrúa Á-listans.
Tengdar fréttir Álftanes óskar eftir aðstoð vegna fjárhagserfiðleika Vegna fjárhagsvandræða hefur sveitarfélagið Álftanes óskað eftir aðkomu Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Það er mat meirihluta bæjarstjórnar Álftaness að verði ekkert að gert, eða gripið til viðeigandi ráðstafana varðandi fjármál bæjarsjóðs, muni stefna í verulegan greiðsluvanda hjá sveitarfélaginu. 28. október 2009 22:23 Sundlaugin að kaffæra sveitarfélagið Sveitarfélagið Álftanes þarf að óbreyttu að greiða meira en 200 milljónir króna í leigugreiðslur á næsta ári til Eignarhaldsfélagsins Fasteignar (EFS) vegna sundlaugar sem tekin var í notkun í sumar, að sögn Kristins Guðlaugssonar, forseta bæjarstjórnar. 30. október 2009 05:00 Eiginfjárstöðu og gengishruni að kenna Sigurður Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóri á Álftanesi, segir að vegna veikrar eiginfjárstöðu sveitarfélagsins hafi hrunið á gengi krónunnar valdið meiri skaða á efnahag Álftaness en flestra annarra sveitarfélaga. Álftanes hefur nú óskað eftir aðstoð Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga við að greiða úr miklum fjárhagsvanda. 31. október 2009 05:30 Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Sjá meira
Álftanes óskar eftir aðstoð vegna fjárhagserfiðleika Vegna fjárhagsvandræða hefur sveitarfélagið Álftanes óskað eftir aðkomu Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Það er mat meirihluta bæjarstjórnar Álftaness að verði ekkert að gert, eða gripið til viðeigandi ráðstafana varðandi fjármál bæjarsjóðs, muni stefna í verulegan greiðsluvanda hjá sveitarfélaginu. 28. október 2009 22:23
Sundlaugin að kaffæra sveitarfélagið Sveitarfélagið Álftanes þarf að óbreyttu að greiða meira en 200 milljónir króna í leigugreiðslur á næsta ári til Eignarhaldsfélagsins Fasteignar (EFS) vegna sundlaugar sem tekin var í notkun í sumar, að sögn Kristins Guðlaugssonar, forseta bæjarstjórnar. 30. október 2009 05:00
Eiginfjárstöðu og gengishruni að kenna Sigurður Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóri á Álftanesi, segir að vegna veikrar eiginfjárstöðu sveitarfélagsins hafi hrunið á gengi krónunnar valdið meiri skaða á efnahag Álftaness en flestra annarra sveitarfélaga. Álftanes hefur nú óskað eftir aðstoð Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga við að greiða úr miklum fjárhagsvanda. 31. október 2009 05:30