Innlent

Leggja fram frumvarp um upplýsingaskyldu ríkisfyrirtækja

Helgi Hjörvar er einn af flutningsmönnum frumvarpsins.
Helgi Hjörvar er einn af flutningsmönnum frumvarpsins.

Frumvarp um upplýsingaskyldu fyrirtækja, félaga og stofnana í eigu íslenska ríkisins verður dreift á alþingi í dag. Í því felst að fyrirtæki, félög og stofnanir sem eru að helmingi eða meira í eigu íslenska ríkisins upplýsi um allar afskriftir skuldunauta viðkomandi aðila.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Helga Hjörvari sem leggur frumvarpið fram ásamt þeim Katrínu Júlíusdóttur og Ellerti B. Schram.

„Frumvarpinu er ekki ætlað að ná til afskrifta sem leiða af almennum ákvörðunum um niðurfærslu á skuldum heimila, heldur er fyrst og fremst verið að tryggja að engar óeðlilegar eða óvenjulegar afskriftir séu gerðar í skjóli leyndar."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×