Vill samræmd próf upp úr grunnskóla 16. nóvember 2009 04:30 Nemendur í Hlíðaskóla í samræmdu prófi. Meirihlutinn í Reykjavík hefur ákveðið að kanna kosti þess að taka upp samræmd próf upp úr grunnskólum að nýju. Menntamálráðherra undrast það, mikil sátt hafi ríkt um breytingarnar sem gerðar voru í tíð forvera hennar. fréttablaðið/gva
Menntaráð Reykjavíkur hefur skipað starfshóp um námsmat í grunnskólum borgarinnar. Meðal þess sem hópurinn á að skoða er hvort rétt sé að samræmd próf verði aftur haldin að vori, en ekki hausti eins og nú er. Fyrirkomulagi samræmdra prófa var breytt árið 2008 og þau haldin að hausti, í upphafi 10. bekkjar. Áður voru prófin að vori, en nú er gefin skólaeinkunn upp úr grunnskólanum. Kjartan Magnússon, formaður ráðsins, segir það sína skoðun að það hafi verið mistök að færa prófin að hausti. Breyta hafi þurft fyrirkomulagi prófanna frá því sem var, en rétt sé að halda þau að vori í lok skólans. „Við í meirihlutanum gagnrýndum þetta og fannst samræmdu prófin skipta máli. Jafnvel þó þau væru ekki notuð til að meta inn í framhaldsskólana þá skipti máli að sjá svart á hvítu hvernig nemendur stæðu.“ Kjartan segist hafa orðið var við mikla gagnrýni í skólunum, bæði hjá nemendum og kennurum. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir þetta koma sér á óvart. Málið hafi verið unnið í mikilli sátt í tíð forvera hennar, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Katrín segir að skólastarf hafi miðast um of að samræmdu prófunum; þær greinar sem ekki hafi verið prófað í hafi orðið útundan. Kerfið nú sé í takt við það sem Finnar hafi notað með góðum árangri. Nokkur umræða var um það að einkunnir myndu hækka þegar samræmdu prófin væru ekki lengur til staðar. Katrín segir að það hafi ekki verið kannað til hlítar, en stikkprufur sýni að einkunnir hafi ekki bólgnað. Áfram verði þó fylgst með þróuninni. Áheyrnarfulltrúi Skólastjórafélags Reykjavíkur óskaði eftir því að eiga fulltrúa í starfshópnum, ásamt fulltrúa kennara. Meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks vísaði þeirri tillögu frá, gegn atkvæðum minnihlutans. Ekki náðist í fulltrúa skólastjórafélagsins við vinnslu fréttarinnar. Kjartan segir að ákveðið hafi verið að hafa starfshópinn aðeins þriggja manna og pólitískt skipaðan, það væri þá hægt að kalla eftir sjónarmiðum fleiri inn í hópinn. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, fulltrúi Framsóknarflokks, gegnir formennsku í starfshópnum. Menntamálaráðherra fundar á næstu dögum með skólastjórum grunn- og framhaldsskóla. Þar verða skilin á milli skólastiganna rædd sérstaklega. kolbeinn@frettabladid.is kjartan magnússon
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Sjá meira