Ömurleg skilaboð stjórnvalda Kristján Már Unnarsson skrifar 2. október 2009 18:56
Ríkisstjórnin sendir ömurleg skilaboð, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann telur aðgerðir hennar gegn stóriðjuáformum ávísun á meiri kreppu. Forsætis- og fjármálaráðherra reyna að gera lítið úr áhrifum boðaðra orkuskatta og þeim töfum sem úrskurður umhverfisráðherra veldur Helguvíkurálveri.Fyrst kippir ríkisstjórnin fótunum undan álveri á Bakka, síðan Helguvíkurálveri en með áformum um orkuskatt eru öll stóriðjuáform sett í uppnám, segir Vilhjálmur Egilsson, og kallar þetta ömurleg skilaboð. Stjórnvöld á Íslandi séu ekki að vinna heilshugar með því að koma verkefnunum af stað.Orkuskattur muni á endanum lenda á orkufyrirtækjum og rýra samkeppnisstöðu Íslands. Hann sé eitt af því sem þurfi að fara út af borðinu.Sérfræðingur fjármálaráðuneytis áætlar að frestun stóriðjuframkvæmda um eitt ár þýði að samdráttur á næsta ári verði ekki tvö prósent heldur fjögur.Vilhjálmur segir að fjárfestingar í atvinnulífinu á næsta ári séu algjört lykilatriði um það hvort við komumst út úr kreppunni eða ekki. Hann kallar áform ríkisstjórnarinnar mjög hættuleg. Saman með furðuákvörðun umhverfisráðherra sé þetta ekkert annað en ávísun á frekari samdrátt.Forsætisráðherra telur of mikið gert úr úrskurðinum um Suðurnesjalínu og segir að þó að umhverfisráðherra kalli eftir fleiri gögnum þurfi það ekki að tefja málið svo neinu nemur.Fjármálaráðherra reynir að róa menn vegna áformaðra orkuskatta og segir að ekki standi til að kollvarpa atvinnustarfsemi eða þurrka upp hagnað og forsætisráðherra kveðst enga trú hafa á því að þetta fæli frá erlenda fjárfesta.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mæta Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Sjá meira