Mótmælandi í mál vegna ólögmætrar handtöku Valur Grettisson skrifar 27. október 2009 11:07 Haukur flaggaði Bónusfánanum og var handtekinn nokkrum dögum síðar.
Mótmælandinn Haukur Hilmarsson er búinn að stefna fjármálaráðuneytinu vegna ólögmætrar handtöku en fyrirtaka verður í málinu um klukkan þrjú í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Það er mannréttindalögfræðingurinn Ragnar Aðalsteinsson sem sækir málið fyrir Hauk. Hann krefst skaðabóta vegna handtökunnar sem átti sér stað í nóvember á síðasta ári. Handtakan vakti gríðarlega athygli en Haukur hafði helgina áður klifrað upp á Alþingi þar sem hann flaggaði Bónusfánanum. Nokkrum dögum síðar var hann handtekinn eftir að hann hafi verið í vísindaferð á vegum Háskóla Íslands í Alþingishúsinu sjálfu. Hann var þó handtekinn í öðru húsi sama kvöld. Haukur var handtekinn og dæmdur fyrir mótmæli á Reyðarfirði sumarið 2006. Þar var hann dæmdur til sektar. Í stað þess að greiða hana ákvað Haukur að sitja sektina af sér. Haukur var snemma á síðasta ári boðaður í afplánun. Hann mætti og afplánaði fjóra daga. Á fimmta deginum var honum hins vegar tilkynnt að hlé þyrfti að gera á afplánuninni. Rýma þurfti klefann fyrir öðrum fanga. Því var honum sleppt. Stjórnvöld viðurkenndu svo að hafa vegna mistaka hjá innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar, handtekið Hauk en hann fékk aldrei boð um að hann ætti að hefja afplánun að nýju og var því handtekinn fyrirvaralaust í nóvember. Það er lögbrot. Daginn eftir að Haukur var handtekinn safnaðist hópur saman fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötuna. Þeir gerðu áhlaup á stöðina með slíku offorsi að annað eins hefur ekki sést hér á landi. Hauki var að lokum sleppt úr haldi. Það var ekki fyrr en mótmælendur voru búnir að ryðjast inn á lögreglustöðina en því svöruðu lögreglumenn með piparúða. Að sögn Ragnars, lögmanns Hauks, þá krefst ríkið sýknunar. Aðspurður sagðist Ragnar ekki hafa það á hreinu í augnablikinu hversu háar skaðabætur Haukur krefst en samkvæmt heimildum Vísis eru þær um hálf milljón króna. Fyrirtaka er í málinu síðar dag.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira