Óhjákvæmilegt að Ísraelar ráðist á Íran Óli Tynes skrifar 6. nóvember 2009 15:49 Ísraelskar F-15 orrustuþotur.
Hvorki Vesturlönd né Ísrael trúa því að kjarnorkuáætlun Íraks sé friðsamleg. Síðast í dag var uppýst að Íranar væru að gera tilraunir með nýja tegund kjarnaodda til þess að setja í eldflaugar. Þetta hefur enn orðið til þess að ýta undir vangaveltur um árás á Íran og þá sérstaklega af hálfu Ísraela. Danny Ayalon aðstoðar utanríkisráðherra sagði í samtali við Sky fréttastofuna að Íranar væru aðeins að kaupa sér tíma með viðræðum við Vesturlönd. Á meðan rembdust þeir eins og rjúpan við staurinn við að koma sér upp kjarnorkusprengjum. Engin blekking Ayalon sagði að stefna Ísraels um hugsanlega árás væri engin blekking. Ekki kæmi til greina að búa við það að Íran réði yfir kjarnorkuvopnum. Dr. Ronen Bergman höfundur bókarinnar „Leynistríðið við Íran" segir að ef Íranar gefi ekki skyndilega eftir í kjarnorkubrölti sínu sé óhjákvæmilegt að Ísrael geri árás á kjarnorkuver þeirra. Árásin á Írak Alveg eins og þeir árið 1981 réðust á kjarnorkuver sem Saddam Hussein var að reisa með aðstoð Frakka í Írak. Saddam sagði að fyrsta arabiska kjarnorkusprengjan yrði smíðuð þar. Ísraelar lögðu kjarnorkuverið í rúst og hlutu fyrir það fordæmingu Sameinuðu þjóðanna og voru sérstaklega Frakkar trylltir af bræði. Þegar gerð var innrás í Írak árið 1990 til þess að hrekja Íraka frá Kúveit voru menn þó býsna fegnir að þurfa ekki að hafa áhyggjur af kjarnorkusprengjum Saddams. Árás yrði dýrkeypt Ísraelar vita vel að þeir eiga ekki von á góðu ef þeir ráðast á Íran. Þeir mega eiga von á gagnárásum bæði frá Írönum og bandamönnum þeirra í Hizbolla og Hamas. Auk þess yrðu gerðar hryðjuverkaárásir út um allan heim. Þeir myndu einnig eiga á hættu að missa bæði menn og flugvélar. Þótt ólíklegt sé að íranski flugherinn standist þeim ísraelska snúninginn eiga íranar gríðarlega mikið af loftvarnaeldflaugum og loftvarnabyssum sem þeir hafa sett upp við líklegustu skotmörkin. Reiðubúnir að taka afleiðingunum Sjálfsagt myndu Sameinuðu þjóðirnar svo fordæma Ísrael eins og venjulega. Sérfræðingar í málefnum Miðausturlanda telja þó að Ísraelar séu reiðubúnir að þola allt þetta frekar en eiga á hættu að Íran verði kjarnorkuveldi.Það er jú margyfirlýst stefna Írana að þurrka Ísrael út af landakortinu.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira