Innlent

Rignir á golfara á Þingeyri

Úr myndasafni
Úr myndasafni Mynd/Stefán Karlsson

Vormót Golfklúbbsins Glámu á Þingeyri hófstklukkan 10 á Meðaldalsvelli í Dýrafirði en hann er fyrsti golfvöllurinn sem opnaður er á Vestfjörðum nú í vor. Dýrfirðingar byrjuðu reyndar að spila á vellinum þegar í mars og dæmi eru um að þeir hafi haldið golfmót í kringum áramót enda veðursæld með besta móti í Dýrafirði.

Veður er reyndar ekki sérlega hagstætt til golfiðkunar þessa stundina, að Jóhannesar Ingimarssonar, formanns golfklúbbsins, rigning og gengur á með vindhviðum, en þó eru sautján kylfingar skráðir til leiks.

Meðaldalsvöllur hefur nokkra sérstöðu meðal golfvalla landsins en hann þykir státa ef fegurstu braut landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×