Varnarmálastofnun lögð niður 4. desember 2009 19:46 Varnarmálastofnun tók til starfa 1. júní 2008 undir stjórn Ellisifjar Tinnu Víðisdóttur, forstjóra.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisríkisráðherra, sem felur í sér að Varnarmálastofnun verður lögð niður og að verkefni stofnunarinnar verði færð til fyrirhugaðs innanríkisráðuneytis. Þetta mun ekki hafa áhrif á varnar- og öryggisskuldbindingar Íslands. Stofnunin tók til starfa 1. júní 2008 undir stjórn Ellisifjar Tinnu Víðisdóttur, forstjóra. „Hvort tveggja byggir á samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem segir að Varnamálastofnun verði endurskoðuð í samræmi við áherslur í áhættumatsskýrslu fyrir Ísland, og að lögfest verði sameining samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og dómsmála- og mannréttindaráðuneytis í innanríkisráðuneyti fyrir lok kjörtímabilsins," segir á vef utanríkisráðuneytisins. Varnarmálastofnun verður lögð niður þegar á næsta ári eins og fram kemur í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2010. Breytingum sem leiða af niðurlagningu hennar þarf því að ljúka fyrr og þær þurfa að rúmast innan óbreyttrar verkaskiptingar Stjórnarráðsins. „Það felst m.a. í því að verkefni Varnamálastofnunar verða færð til þeirra borgaralegu stofnana sem næst standa verkefnum hennar í dag en jafnframt yrðu burðarás í fyrirhuguðu innanríkisráðuneyti. Samhliða þessu þarf að móta skýra framtíðarsýn um verkaskiptingu utanríkisráðuneytis og innanríkisráðuneytis í varnar- og öryggismálum." Á vef utanríkisráðuneytisins segir að með þessu skapist möguleikar á róttækri endurskipulagningu stofnana sem fara með öryggismál sem séu til þess fallin að einfalda og skýra stjórnsýslulegt forræði málaflokksins. „Umrædd breyting mun ekki hafa efnisleg áhrif á varnar- og öryggisskuldbindingar Íslands, s.s. þátttöku í starfi Atlantshafsbandalagsins, varnarsamninginn við Bandaríkin eða annað fjölþjóðlegt samstarf um öryggismál. Utanríkisráðuneytið mun eftir sem áður hafa forræði yfir utanríkispólitískum þáttum á borð við samskipti við NATO," segir á vef utanríkisráðuneytisins.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Sjá meira